Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Radíóamatörar

Radíóamatörar eru áhugamenn um fjarskipti sem nota sérstök tíðnisvið til radíótilrauna, samskipta og tæknilegrar þróunar. Starfsemin er alþjóðlega viðurkennd og gegnir mikilvægu hlutverki í nýsköpun, þekkingaruppbyggingu og neyðarfjarskiptum.

Fjarskiptastofa gefur út skírteini fyrir radíóamatöra, sem staðist hafa tilskilin próf (N-leyfi og G-leyfi).

Nánari upplýsingar um radíóamatöra má fá hjá Félagi íslenskra radíóamatöra. Sjá reglugerð um starfsemi radíóáhugamannna nr 348/2004. Sjá einnig breytingu á reglugerð nr. 348/2004 frá 2018.

Umsókn um radíóleyfi áhugamanna