Númer og vistföng
Fjarskiptastofa sér um úthlutun númera, númeraraða og vistfanga til rekstrarleyfishafa sem notuð eru í fjarskiptaþjónustu við samtengingu sjálfstæðra fjarskiptaneta. Stofnunin hefur eftirlit með að númer séu notuð í samræmi við reglur og að þeir aðilar sem fá úthlutun nýti auðlindirnar á skilvirkan hátt.
Hvað telst til númera og vistfanga?
Símanúmer og númeraraðir.
Stuttnúmer / þjónustunúmer (til dæmis 116-x þjónustur).
MNC (Mobile Network Codes), auðkenni farsímafyrirtækja.
ISPC (International Signalling Point Codes), notað í kjarnanetum.
MMSI (Maritime Mobile Service Identity), auðkenni báta og skipa .
DNIC, ADMD vistföng, auðkenni í sértækum netum og póstkerfum.
Skilyrði fyrir úthlutun
Fjarskiptastofa úthlutar númerum og vistföngum eingöngu til aðila sem hafa gilt rekstrarleyfi á Íslandi. Úthlutun fer fram samkvæmt verklagsreglum stofnunarinnar og íslensku númeraplaninu E.164.
