Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Netöryggisregluverk Evrópusambandsins

Netöryggisregluverk Evrópusambandsins hefur mótast sem hluti af stærri stefnu um öruggt, viðnámsþolið og stafrænt samfélag. Þar mætast öryggisstefna ESB, netöryggisstefna sambandsins og markmið Stafræna áttavitans um þróun Evrópu fram til ársins 2030.

Öryggisstefna ESB tekur til fjölbreyttra og samtengdra ógna, þar á meðal netógna, fjölþátta ógna og áhættu gagnvart mikilvægum innviðum. Innan þess ramma beinist netöryggisstefnan sérstaklega að því að styrkja netvarnir, tæknilegt sjálfstæði, viðbragðsgetu og samstarf milli ríkja.

Stafræni áttavitinn bætir við skýrri framtíðarsýn um stafræna umbreytingu. Áhersla er lögð á stafræna færni, örugga innviði, stafræna þróun atvinnulífs og stafræna opinbera þjónustu. Öryggi er þar ekki sérverkefni heldur forsenda þess að fólk, fyrirtæki og stjórnvöld geti treyst stafrænni þjónustu.

Þessi stefnumótun hefur leitt til fjárfestinga, samstarfsverkefna og nýs regluverks. Reglurnar eiga að draga úr veikleikum, skýra ábyrgð, vernda mikilvæga þjónustu og bæta sameiginleg viðbrögð við atvikum sem geta farið hratt yfir landamæri.

Evrópusambandið hefur á undanförnum árum byggt upp heildstæðan ramma um netöryggi sem nær til mikilvægrar þjónustu, stafrænna vara, netöryggisvottunar, viðbúnaðar og viðbragða, auk rannsókna, nýsköpunar og uppbyggingar netöryggisgetu.

Á undirsíðum má nálgast nánari upplýsingar um hverja gerð, markmið hennar, gildissvið og helstu skyldur og úrræði. En saman stuðla þær að auknu netöryggi og stafrænu viðnámsþoli, auknu samstarfi ríkja og sterkari netöryggisgetu í Evrópu.