Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Lélegt samband - úrræði

Gott netsamband er mikilvægt í daglegu lífi. Á Íslandi getur samband verið lélegt vegna:

  • staðsetningar

  • landslags

  • byggingarefna

Þetta á við hvort sem þú ert:

  • heima

  • í vinnu

  • í sumarhúsi

Það eru þó til lausnir sem geta bætt sambandið og gert samskipti áreiðanlegri.

Truflanir – þegar vandinn er ekki hjá þér

Ef þú finnur fyrir óeðlilegum töfum, algengum rofum eða því að samband hverfur skyndilega getur verið að truflun sé í nágrenninu.

Dæmi um truflanir:

  • Erlendar ólöglegar talstöðvar

  • Rangstilltur sendibúnaður

  • Útvarpsbúnaður sem ekki uppfyllir reglur

  • Gömul örbylgjuloftnet sem bila

Fjarskiptastofa rannsakar slík vandamál og er með sérstaka truflanaleit.

Tilkynna truflun á farnetssambandi