Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Gervihnattaþjónusta

Gervihnattafjarskipti geta veitt fjarskiptasamband á stöðum þar sem hefðbundin farnet eða ljósleiðari ná ekki, og gegna lykilhlutverki í neyðarsamskiptum, sjó-, loft- og landflutningum, upplýsingatækni og nýjum þráðlausum lausnum.

Fjarskiptastofa fer með stjórnsýslu og eftirlit með gervihnattaþjónustu á Íslandi. Þetta felur í sér skráningu fyrirtækja, tíðniheimildir, meðferð umsókna fyrir jarðstöðvar og samskipti við Alþjóðafjarskiptasambandið (ITU).

Hverjir þurfa að skrá sig?

Allir aðilar sem hyggjast veita gervihnattaþjónustu á Íslandi þurfa að skrá sig hjá Fjarskiptastofu áður en starfsemi hefst. Til að skrá sig skal fylla út tilkynningar form hér.

Það á bæði við um:

  • alþjóðleg fyrirtæki sem starfrækja gervihnattakerfi

  • þjónustuaðila sem selja þjónustu hér á landi

  • aðila sem reka jarðstöð sem tengist gervihnöttum

Tíðnir fyrir gervihnattaþjónustu

Tíðnir sem notaðar eru fyrir gervihnattaþjónustu í samskiptum milli jarðar og gervihnatta eru skráðar í íslenska tíðniskipulaginu (NTFA). Evrópskar ákvarðanir (til dæmis ECC ákvarðanir) um notkun tíðnisviða eru innleiddar í það skipulag.

Ef fyrirtæki hyggst nota tiltekið tíðnisvið þarf að tryggja:

  • að það sé heimilt samkvæmt NTFA

  • að það sé í samræmi við alþjóðlegar reglur

  • að búnaður valdi ekki truflunum á öðrum kerfum

Skráning gervihnattatíðna hjá ITU

Fjarskiptastofa sér um að skrá tíðnir sem gervihnattafyrirtæki hyggjast nota í starfsemi sinni hjá Alþjóðafjarskiptasambandið (ITU). Úrvinnsla og samþykki slíkrar skráningar fer eftir:

  • alþjóðlegu radíóreglugerðinni (Radio Regulations, RR)

  • málsmeðferðarreglum ITU‑R

  • innlendum reglugerðum um skráningu gervihnattatíðna (nr. 305/2019)

Skilyrði:

  • Umsækjandi þarf að vera skráð fyrirtæki á Íslandi.

  • Fyrirtækið má þó hafa höfuðstöðvar í öðru ríki að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

Til að sækja um gervihanattatíðni skal senda á tölvupóst á fjarskiptastofa@fjarskiptastofa.is

Jarðstöðvar – leyfisskyld starfsemi

Jarðstöðvar gervihnattakerfa, hvort sem þær eru litlar eða stórar, eru leyfisskyldar samkvæmt fjarskiptalögum. Til að starfrækja jarðstöð þarf að:

  • tilkynna um fyrirhugaða fjarskiptastarfsemi skv. almennri heimild

  • leggja inn umsókn til Fjarskiptastofu

  • fá útgefið leyfi áður en rekstur hefst

  • greiða árlegt gjald fyrir starfrækslu jarðstöðvar (25.100 kr. samkvæmt lögum)

Umsókn skal innihalda:

  • tæknilýsingar

  • upplýsingar um staðsetningu

  • notkun á tíðnum

Til að sækja um leyfi skal fylla út þetta pdf skjal og senda til fjarskiptastofu

Lágfljúgandi gervihnettir – nýjar lausnir

Nýjasta þróunin í gervihnattatækni eru lágfljúgandi netkerfi (LEO) eins og Starlink og sambærileg kerfi. Slík kerfi:

  • geta veitt internettengingu á afskekktum svæðum,

  • henta vel þar sem ljósleiðari eða 4G/5G er ekki í boði,

  • geta stutt við nýjar tegundir farsímaþjónustu í framtíðinni.

Fjarskiptastofa bendir notendum á að kynna sér þjónustuframboð hjá þjónustuaðilum og tryggja að búnaður sé samþykktur og í samræmi við reglur.