Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Vefur Fjarskiptastofu fluttur á island.is

19. október 2026

Vefur Fjarskiptastofu fluttur yfir á island.is mánudaginn 19. október 2026

Vefur Fjarskiptastofu fluttur yfir á island.is, mánudaginn 19. október. Flutningurinn er liður í stefnu Fjarskiptastofu um að fylgja stafrænni þróun hins opinbera og nýta sameiginlega stafræna innviði ríkisins til að bæta þjónustu og aðgengi að upplýsingum.

Við biðjum notendur að hafa í huga að eldri bókamerki (bookmarks) og hlekkir á einstakar síður gætu hætt að virka eftir flutninginn. Ef það gerist mælum við með að leita að viðkomandi efni á island.is og uppfæra vistuð bókamerki eftir þörfum.

Markmið breytingarinnar er að gera upplýsingar og þjónustu Fjarskiptastofu aðgengilegri, öruggari og samræmda við aðra stafræna þjónustu hins opinbera.

Við þökkum fyrir skilninginn og hlökkum til að taka á móti ykkur á nýjum vettvangi á https://island.is/s/fjarskiptastofa