Samráð um tíðnir fyrir staðbundin 5G-net og einkanet
22. október 2026
Fjarskiptastofa óskar eftir umsögnum um fyrirhugaða ráðstöfun tíðnisviðsins 3800–4200 MHz fyrir staðbundin 5G-net og einkanet. Tillögurnar taka meðal annars til fyrirkomulags tíðniheimilda, sendaafls, bandbreiddar, gildistíma og gjalda.

Fjarskiptastofa óskar eftir umsögnum um fyrirhugaða ráðstöfun tíðnisviðsins 3800–4200 MHz fyrir staðbundin 5G-net og einkanet. Tillögurnar taka meðal annars til fyrirkomulags tíðniheimilda, sendaafls, bandbreiddar, gildistíma og gjalda.
Tíðnisviðið 3800–4200 MHz hentar vel fyrir staðbundin net sem þurfa mikla afkastagetu. Slík net geta meðal annars nýst fyrirtækjum, verksmiðjum, höfnum og orkufyrirtækjum. Tíðnisviðið getur einnig nýst fyrir fasta þráðlausa breiðbandsþjónustu.
Fjarskiptastofa leggur til að tíðniheimildir verði bundnar við afmörkuð landsvæði eða tiltekna sendastaði. Heimildunum verði skipt í tvo flokka:
Lágaflsheimildir, sem gilda innan afmarkaðs svæðis með 50 metra radíus. Þar verði heimilt að reka fleiri en einn sendi.
Heimildir fyrir miðlungs sendaafl, sem verði bundnar við tiltekinn sendastað.
Lagt er til að hægt verði að sækja um 20, 40, 60, 80 eða 100 MHz bandbreidd og að 100 MHz verði hámarksbandbreidd hverrar heimildar. Einnig er lagt til að tíðniheimildir verði teknar í notkun innan 12 mánaða og að hámarksgildistími þeirra verði 10 ár.
Fjarskiptastofa óskar sérstaklega eftir sjónarmiðum um:
hvort taka eigi allt tíðnisviðið 3800–4200 MHz frá fyrir staðbundin net og einkanet eða aðeins hluta þess
hvort fyrirhuguð svæðisbundin úthlutun stuðli að skilvirkri nýtingu tíðnirófsins
flokkun heimilda eftir sendaafli og hvort 50 metra radíus sé heppilegt viðmið
hámarksbandbreidd tíðniheimilda
kröfu um að heimildir verði teknar í notkun innan 12 mánaða
10 ára hámarksgildistíma
fyrirhugaða gjaldtöku
mögulegar takmarkanir á notkun senda með miðlungs sendaafli í nágrenni stærri þéttbýlisstaða.
Frestur til að skila inn umsögnum er til og með 10. nóvember 2026
Umsagnir og athugasemdir óskast sendar á fjarskiptastofa@fjarskiptastofa.is. Fjarskiptastofa mun birta opinberlega allar athugasemdir sem berast, nema sérstaklega verði óskað trúnaðar og mun þá stofnunin leggja mat á slíka beiðni.
