Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Þessi frétt er meira en árs gömul

Samnýting  jarðvinnuframkvæmda sem styrktar eru af fjarskiptasjóði

14. febrúar 2025

Fjarskiptastofa minnir á að samkvæmt samningum fjarskiptasjóðs við sveitarfélög árið 2024, um styrki til jarðvinnuframkvæmda vegna ljósleiðaravæðingar þéttbýlisstaða, ber að gefa kost á samnýtingu framkvæmda í samræmi við 11. gr. skilmála fjarskiptasjóðs frá 2. júlí 2024 og 2. mgr. 8. gr. laga um ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraðafjarskiptaneta nr. 125/2019.

Þegar upplýsingar liggja fyrir um fyrirkomulag, umfang og fyrirhugaða tímasetningu jarðvegsframkvæmda og frest til þess að óska eftir samnýtingu, þá skal sveitarfélag tafarlaust senda Fjarskiptastofu tilkynningu þar að lútandi, til birtingar á vefsíðu stofnunarinnar. Sveitarfélag skal jafnframt birta sams konar tilkynningu á sinni vefsíðu.

Meðal atriða sem koma þurfa fram í tilkynningu er eftirfarandi:

  1. Sveitarfélag og þéttbýlisstað/byggðakjarna sem um ræðir

  2. Aðili sem annast framkvæmd (sveitarfélag sjálft eða verktaki)

  3. Staðsetning, umfang og tegund framkvæmdar (t.d. plæging eða skurðgröftur)

  4. Áætlaður upphafstími og lokatími framkvæmda

  5. Möguleg tilhögun samnýtingar

  6. Frestur til að óska eftir samnýtingu

  7. Tengiliður vegna verkefnisins

Fjarskiptastofa birtir tilkynningar sem berast frá sveitarfélögum á vefslóðinni:

https://www.fjarskiptastofa.is/fjarskiptastofa/fjarskiptainnvidir/fyrirhugadar-jardvegsframkvaemdir/