Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ríkisstjórnin styrkir gervigreindaráskorunina Elemennt

23. apríl 2021

Gervigreindaráskorunin Elemennt er opið vefnámskeið sem ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að fjárfesta í til að styrkja íslensku þjóðina og auka samkeppnishæfni hennar.

Gervigreindaráskorunin Elemennt er opið vefnámskeið sem ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að fjárfesta í til að styrkja íslensku þjóðina og auka samkeppnishæfni hennar.

Fram kemur á Ísland.is að námskeiðið sé hluti af aðgerðaráætlun fyrir Ísland í fjórðu iðnbyltingunni, með það að leiðarljósi að leggja rækt við þekkingu, uppbyggingu hennar og flæði um allt samfélagið.

Markmið verkefnisins eru:

  • Að gera þekkingu á gervigreind aðgengilega fyrir alla svo fólk finni kraft og tækifæri í nýrri tækni, fremur en ógn

  • Að valdefla íslensku þjóðina og auka samkeppnishæfni hennar

  • Að styrkja starfsmöguleika og starfshæfni Íslendinga

Um er að ræða 30 klukkustunda netnámskeið í 6 hlutum sem einstaklingar geta tekið þegar þeim hentar, hvort sem er í tölvu eða síma, en það er hannað til að vera aðgengilegt flestum, óháð aldri, starfsreynslu eða öðru. Námskeiðið hefur hlotið fjölda verðlauna (meðal annars frá MIT – Massachusetts Institute of Technology) og er nefnt fyrst í flokki vefáfanga um tölvunarfræði, á undan áföngum þekktra menntastofnana á borð við Stanford, Harvard og MIT.

Námskeiðið er ókeypis og öllum opið. Námshraðinn er sveigjanlegur og hentar því vel.

Elements of AI er yfirheiti vefnámskeiða sem fyrirtækið Reaktor og háskólinn í Helsinki þróa í sameiningu og öllum standa til boða endurgjaldslaust.Marmiðið er að fá sem flesta til að kynna sér gervigreind, hvað við getum gert með gervigreind (og hvað ekki) og á hvaða grunni gervigreindaraðferðir eru byggðar.

Efni námskeiðanna er annars vegar umfjöllun um fræðileg atriði og hins vegar æfingar úr námsefninu.

Nánari upplýsingar og þátttaka er á vef námskeiðsins.