Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Þessi frétt er meira en árs gömul

Opnun vefsjár Fjarskiptastofu

2. febrúar 2024

Í tengslum við UT messuna sem fram fer í dag og á morgun mun Fjarskiptastofa opna nýja vefsjá fyrir almenning. Vefsjáin er hugsuð til upplýsingar fyrir alla sem vilja kynna sér stöðu og þróun fjarskiptauppbyggingar á Íslandi hvort sem um er að ræða tengingar heimila og fyrirtækja við ljósleiðara eða uppbyggingu farneta á landsvísu.

Í tengslum við UT messuna sem fram fer í dag og á morgun mun Fjarskiptastofa opna nýja vefsjá fyrir almenning. Vefsjáin er hugsuð til upplýsingar fyrir alla sem vilja kynna sér stöðu og þróun fjarskiptauppbyggingar á Íslandi hvort sem um er að ræða tengingar heimila og fyrirtækja við ljósleiðara eða uppbyggingu farneta á landsvísu. Meðal þess sem skoða má í vefsjánni er:

• Fjarskiptaaðgengi staðfanga (heimila og fyrirtækja) um fastanet þar sem þekja sýnir staðföng landsins í punktaformi lituð eftir hversu gott aðgengi þau hafa að fastaneti.
• Fjarskiptaaðgengi um farnet þar sem sjá má þekju sem sýnir gæði farnetssambands á staðföngum landsins.
• Útbreiðsla 2G, 3G, 4G og 5G sem sýnir áætlaða útbreiðslu farnetsmerkis allra fyrirtækja.
• Samband á stofnvegum þar sem sjá má alla vegakafla sem samband næst frá einhverjum markaðsaðila.
• Farnetsmælingagögn úr mælingum á 4G. Hægt að skoða alla mælipunkta á korti.

Þá eru í fyrsta sinn birtir mælikvarðar sem Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hefur sett fyrir uppbyggingu ljósleiðara í byggð og uppbygging farneta á stofnvegum landsins.
• Fjarskiptamælikvarði: Þéttbýlisstaðir og byggðarkjarnar landsins sýndir sem flákar á korti. Þeir sem náð hafa 80% ljósleiðaraútbreiðslu eru litaðir grænir og þeir sem ekki hafa náð því markmiði eru litaðir á litaskala eftir stöðu.
• Fjarskiptamælikvarði: Sýnir stofnvegi landsins sem línur á korti. Þeir kaflar stofnvega sem ekki eru dekkaðir af 10 Mb/s farneti eru litaðir rauðir. Þeir kaflar sem bæst hafa við vegna samnýtingar eru litaðir í einkennandi lit.

Hér að neðan er vefslóð fyrir vefsjá Fjarskiptastofu:
https://kortasja.lmi.is/mapview/?application=fjarskiptastofa