Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Þessi frétt er meira en árs gömul

Október er alþjóðlegur netöryggismánuður

1. október 2020

Á morgun föstudaginn 2. okt. er upphafsfundur á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins sem ber heitið Netöryggi okkar allra.

Október er alþjóðlegi netöryggismánuðurinn og Ísland lætur ekki sitt eftir liggja.

Á morgun föstudaginn 2. okt. er upphafsfundur á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins sem ber heitið Netöryggi okkar allra. Fundurinn er hluti af viðburðum sem tengjast Evrópska netöryggismánuðinum (European Cyber Security Month) og verður sendur út beint á vef Stjórnarráðsins kl. 13.00.

Öllum er velkomið að fylgjast með fundinum en gestir eru beðnir um að skrá þátttöku.

Hægt er að sjá nánar um átakið á vef ECSM og þar er einnig hægt að skoða viðburði í hverju landi fyrir sig.

PFS hvetur alla aðila sem hyggjast halda innlenda viðburði tengda netöryggismálum að skrá þá vef átaksins.