Þessi frétt er meira en árs gömul
Nýjar reglugerðir um markaðsgreiningar á sviði fjarskipta og um bókhald og kostnaðargreiningu í rekstri fjarskiptafyrirtækja
12. júní 2023
Þann 23. maí sl. gaf ráðherra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar út tvær nýjar reglugerðir á sviði fjarskipta og voru þær birtar í Stjórnartíðindum 9. júní sl.

Þann 23. maí sl. gaf ráðherra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar út tvær nýjar reglugerðir á sviði fjarskipta og voru þær birtar í Stjórnartíðindum 9. júní sl.
Annars vegar er um að ræða reglugerð um markaðsgreiningar á sviði fjarskipta nr. 556/2023, sem leysir af hólmi eldri reglugerð nr. 741/2009 um það efni.
Hins vegar reglugerð um bókhald og kostnaðargreiningu í rekstri fjarskiptafyrirtækja nr. 555/2023, sem leysir af hólmi eldri reglugerð nr. 564/2011 um það efni.
Báðar reglugerðirnar eru mikilvægar við framkvæmd markaðsgreininga Fjarskiptastofu og taka þær mið af breytingum þeim sem ný fjarskiptalög nr. 70/2022 höfðu í för með sér.
