Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Þessi frétt er meira en árs gömul

Netöryggissveitin CERT-IS varar við alvarlegum veikleikum í algengum, mikilvægum kerfum

12. mars 2021

Sjaldan hafa jafn margir veikleikar komið fram samtímis þar sem mjög há einkunn er gefin.

Netöryggissveitin CERT-IS varar við alvarlegum veikleikum í algengum, mikilvægum kerfum og bendir á að sjaldan hafi jafn margir alvarlegir veikleikar komið fram samtímis. Sem dæmi má nefna Microsoft Exchange.

CERT-IS vill því koma á framfæri lista yfir hugbúnað og kerfi sem eru með mjög alvarlega veikleika og biður rekstraraðila og kerfisstjóra að grípa strax til viðeigandi ráðstafana.

Sjá nánar í frétt á vef netöryggissveitarinnar.