Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lokun 2G og 3G nálgast! - 9 mánuðir til stefnu

8. apríl 2025

Fjarskiptastofa minnir á að lokun 2G og 3G farsímaþjónustu hér á landi fer nú fram í áföngum og verður lokið hjá öllum fjarskiptafyrirtækjum í síðasta lagi í árslok 2025.

Fjarskiptastofa minnir á að lokun 2G og 3G farsímaþjónustu hér á landi fer nú fram í áföngum og verður lokið hjá öllum fjarskiptafyrirtækjum í síðasta lagi í árslok 2025.

Síðastliðna áratugi hefur þessi þjónusta þjónað mikilvægu hlutverki, en hún stenst ekki lengur kröfur nútímans um háhraða gagnaflutning og eru 2G/3G netin því víðast hvar í heiminum að víkja fyrir nútímalegri tækni (4G og 5G). Tilgangurinn með innleiðingu þessarar nýju tækni er að bæta upplifun viðskiptavina til lengri tíma og vera í stakk búin til að takast á við áskoranir framtíðarinnar með auknum hraða, betri svartíma o.fl.

Hvað breytist hjá notendum?

  • Símtæki og tæki sem aðeins styðja 2G/3G hætta að virka.

  • Símtæki sem ekki styðja VoLTE (Voice over LTE) eða hafa ekki virkjað þá stillingu hætta að virka.

  • Ýmis tæki til vöktunar, mælinga og stýringa, sem aðeins styðja 2G/3G, hætta að virka.

Þjónustusvæði: Útbreiðsla farnets á ekki að minnka við lokunina. Samkvæmt ákvæðum tíðniheimilda skulu fjarskiptafyrirtæki tryggja sambærilegt þjónustusvæði með nýrri tækni (4G/5G).

Tilkynningar um mögulega skerðingu: Ef þú upplifir breytingar á farnetssambandi eftir að 2G/3G sendar hafa verið teknir niður, þá er fyrsta skrefið að athuga hvort tækið þitt styður 4G/5G og hvort framleiðandi/seljandi hefur virkjað VoLTE í tækinu. Þú getur leitað til þíns fjarskiptafyrirtækis og fengið leiðbeiningar. Ef málið leysist ekki, þá geturðu sent ábendingu til Fjarskiptastofu á netfangið fjarskiptastofa@fjarskiptastofa.is með eftirfarandi upplýsingum:

  • Nafn tilkynnanda, símanúmer og/eða tölvupóstfang

  • Staðsetning þar sem skerðingin átti sér stað

  • Hvernig er sambandið núna? (Ekkert / Næst ekki innanhúss / Léleg gæði)

  • Hvernig var sambandið áður?

  • Hvenær varð breytingin?

  • Hjá hvaða fyrirtæki er farsímaþjónustan keypt?

  • Hvaða tegund símtækis er notuð?

  • Er búið að hafa samband við fjarskiptafyrirtækið?

Tenglar á upplýsingar frá fjarskiptafyrirtækjum:

Fjarskiptastofa hvetur bæði notendur og seljendur búnaðar til að undirbúa sig fyrir þessar breytingar og tryggja áframhaldandi tengingu með nútíma búnaði.