Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Þessi frétt er meira en árs gömul

Íslenska farsímakerfið mælist sambærilegt öðrum evrópskum farsímakerfum í óháðum gæðaprófunum

9. janúar 2024

Gæðaprófanirnar hafa staðfest að íslensk fjarskiptafyrirtæki eru að standa sig ágætlega í alþjóðlegum samanburði þegar kemur að farnetskerfinu og þá sérstaklega þegar tekið er tillit til þess hversu strjálbýlt landið er. Það er hins vegar rými til að gera betur og slík vinna er sífellt í gangi hjá fjarskiptafélögunum og þegar hafa einstaka úrbætur verið gerðar á grundvelli gæðaprófananna.

Á nýliðnu ári ákvað Fjarskiptastofa að framkvæma í fyrsta sinn gæðaprófun, unna af óháðum utanaðkomandi aðila, á farnetskerfum fjarskiptafélaganna hér á landi.

Til verksins var fengið þýska sérfræðifyrirtækið Rohde & Schwarz. Fyrirtækið hefur verið í fremstu röð þegar kemur m.a. að þráðlausum fjarskiptum og mælingum á gæðum þeirra. Fyrirtækið sem stofnað var fyrir 90 árum hefur höfuðstöðvar í Þýskalandi og starfsmenn þess eru um 13.800 í 70 löndum.

Tilgangur gæðaprófunarinnar, sem framkvæmd var í september og október sl., var að fá upplýsingar um gæði þeirrar þjónustu sem þrjú stærstu farsímafyrirtækin hér landi veita viðskiptavinum sínum þegar kemur að símtölum sem og gagnahraða við notkun internetsins þ.m.t. streymisþjónustu.

Áhersla var lögð á þrjú mismunandi svæði, þ.e. höfuðborgarsvæðið, þéttbýli á landsbyggðinni með íbúafjölda yfir 1000 manns, auk helstu þjóðvega. Prófunin náði til rúmlega 90% byggðra svæða landsins og fór þannig fram að eknir voru um 9 þúsund kílómetrar og mælingar gerðar samtímis. Hringd voru yfir 17 þúsund símtöl og yfir 160 þúsund gagnaprófanir voru gerðar. Þá var einnig kannað sérstaklega hver staðan væri í þremur helstu verslunarmiðstöðum landsins, Kringlunni, Smáralind og Glerártorgi en um hverja þeirra var gengið í nokkrar klukkustundir og mælingar gerðar.