Þessi frétt er meira en árs gömul
CERT-IS í samstarfi við SANS halda CTF netöryggiskeppni föstudaginn 23. október
19. október 2020
Keppnir sem þessar eru nauðsynleg þjálfunartól fyrir forritara, netstjóra, kerfisstjóra og alla sem koma að rekstri og hönnun tölvukerfa því keppnirnar hjálpa þátttakendum oft að sjá í hve mörg horn þarf að líta þegar kemur að rekstri net-, tölvu- og vefkerfa.

CTF stendur fyrir Capture the Flag og er stafrænn ratleikur þar sem þátttakendur fá aðgang að vefsíðu sem SANS hefur búið sérstaklega til og er markmiðið að finna stafræna fána sem faldir hafa verið á síðunni. SANS er eitt stærsta fyrirtæki í heimi í þjálfun og vottun starfsfólks sem starfar í netöryggi í upplýsingatækni.
Keppnir sem þessar eru nauðsynleg þjálfunartól fyrir forritara, netstjóra, kerfisstjóra og alla sem koma að rekstri og hönnun tölvukerfa því keppnirnar hjálpa þátttakendum oft að sjá í hve mörg horn þarf að líta þegar kemur að rekstri net-, tölvu- og vefkerfa.
Hægt er að lesa meira um keppnina og fyrirkomulagið í frétt á vef CERT-IS.
Nánari dags- og tímasetningar og skráning er á viðburðasíðu CERT-IS.
