Þessi frétt er meira en árs gömul
CERT-IS hefur birt viðvörun frá ISNIC vegna innbrota á aðganga einstaklinga að samfélagsmiðlum
1. júní 2022
Á vef netöryggissveitarinnar CERT-IS kemur fram að ISNIC hafi gefið út viðvörun vegna innbrota á aðganga einstaklinga að samfélagsmiðlum. Innbrotin eiga það sameiginlegt að innbrotsaðilar komust yfir netföng sem höfðu verið notuð til að stofna aðgangana.

Á vef netöryggissveitarinnar CERT-IS kemur fram að ISNIC hafi gefið út viðvörun vegna innbrota á aðganga einstaklinga að samfélagsmiðlum. Innbrotin eiga það sameiginlegt að innbrotsaðilar komust yfir netföng sem höfðu verið notuð til að stofna aðgangana.
Það er:
Aðgangur var stofnaður með netfangi
Skráning léns rann út og lénið varð laust til nýskráningar aftur
Óprúttinn aðili skráði lénið
Aðgangi var stolið með því að óska eftir nýju lykilorði frá samfélagsmiðlunum sem var sent á innbrotsaðilann
Það er óljóst hvernig innbrotsaðilar vita hvaða netföng hafa verið notuð til að skrá aðgangana en vitað er um þó nokkra lista yfir notendanöfn og netföng sem hafa lekið í ýmsum gagnalekum.
ISNIC hefur gripið til varúðarráðstafana og lokað lénum ef skráning telst ekki fullnægjandi eða er metin vafasöm. Ekki er vitað hve mörg lén hafa verið keypt í þessum tilgangi nýlega en sérfræðingar ISNIC telja fulla ástæðu til að vara sérstaklega við þessu nú.
Helstu leiðir til að verjast stuldi á aðgangi er að athuga hvort einstaklingar hafa enn aðgang að þeim netföngum sem notuð voru til að stofna aðganga eða hvort lén sé núna í eigu annarra.
Tveggja þátta auðkenning getur einnig komið í veg fyrir slíka yfirtöku en þó eru dæmi um að tveggja þátta auðkenningar afvirkist þegar netfangi er breytt eða þegar beðið er um endursetningu lykilorða.
