Ákvörðun FST nr. 4/2026 um vegið meðaltal fjármagnskostnaðar (WACC) fyrir árið 2026
20. október 2026
Frumdrög að ákvörðun um vegið meðaltal fjármagnskostnaðar (WACC) fyrir árið 2026 fór í innanlandssamráð sem stóð frá 13. júlí til 17. ágúst 2026. Athugasemdir bárust frá Ljósleiðaranum ehf.

Fjarskiptastofa birtir nú ákvörðun stofnunarinnar nr. 4/2026 um vegið meðaltal fjármagnskostnaðar (WACC) fyrir árið 2026.
Frumdrög að ákvörðun um vegið meðaltal fjármagnskostnaðar (WACC) fyrir árið 2026 fór í innanlandssamráð sem stóð frá 13. júlí til 17. ágúst 2026. Athugasemdir bárust frá Ljósleiðaranum ehf.
Í viðauka I má finna athugasemdir Ljósleiðarans ehf. í heild sinni, og í viðauka II má finna helstu athugasemdir Ljósleiðarans ehf. ásamt afstöðu Fjarskiptastofu.
Ákvörðunardrögin voru send til ESA og annarra eftirlitsstofnana á EES-svæðinu til samráðs með vísan til 28. gr. laga nr. 75/2021 um Fjarskiptastofu og tilmæla ESA frá 2025 um slíkt samráð. Nokkrar athugasemdir bárust FST í forsamráði við ESA sem stofnunin tók tillit til, sjá 4. mgr. í viðauka III, ESA gerði engar athugasemdir við ákvörðunardrögin í formlegu samráði sjá 17. mgr. í viðauka III.
Viðauki I - Athugasemdir Ljósleiðarans
