Þessi frétt er meira en árs gömul
Íslandspóstur ohf. útnefndur alþjónustuveitandi á sviði póstþjónustu
14. desember 2020
Póst- og fjarskiptastofnun hefur útnefnt Íslandspóst ohf. sem alþjónustuveitanda á sviði póstþjónustu um land allt. Fyrirtækið hefur veitt póstþjónustu innan alþjónustu á grundvelli bráðabirgðaákvörðunar nr. 29/2019, sem gildir til 31. desember 2020.

Almennt
Póst- og fjarskiptastofnun hefur útnefnt Íslandspóst ohf. sem alþjónustuveitanda á sviði póstþjónustu um land allt. Fyrirtækið hefur veitt póstþjónustu innan alþjónustu á grundvelli bráðabirgðaákvörðunar nr. 29/2019, sem gildir til 31. desember 2020.
Ákvörðunin kemur í framhaldi af samráði sem viðhaft var við hagsmunaaðila.
Útnefningin gildir frá 1. janúar 2021 til 31. desember 2030. Heimilt er þó að gera breytingar á einstökum ákvæðum útnefningarinnar ef forsendur hafa breyst verulega eða breytingar hafa orðið á lögum og reglugerðum.
Þjónusta innan alþjónustu
Eftirfarandi þjónusta fellur undir alþjónustu samkvæmt ákvörðun PFS:
Bréfum upp að 2 kg. (Letter single piece)
Magnpósti upp að 50 gr. (Bulk letters)
Pökkum upp að 10 kg. (innanlands)
Pökkum upp að 20 kg. (til og frá landinu)
Ábyrgðarsendingum (Registered items)
Tryggðum sendingum (Insured items)
Blindrasendingar upp að 2 kg.
Dreifing póstsendinga, sem falla undir alþjónustu skulu fara fram að lágmarki tvo daga í viku til einstaklinga sem hafa fasta búsetu, sbr. lög um lögheimili og aðsetur. Á sama hátt skal bera út póstsendingar til lögaðila sem hafa fasta atvinnustarfsemi í viðkomandi húsnæði. Heimilt er að stöðva dreifingu póstsendinga til þeirra aðila (einstaklinga eða fyrirtækja) þar sem merkingar eða staðsetning bréfakassa er ekki í samræmi við ákvæði laga og reglugerða á hverjum tíma.
Þá skal Íslandspóstur haga starfsemi sinni í samræmi við þær skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist samkvæmt gildandi alþjóðasamningum á sviði póstmála.
Virk og óvirk markaðssvæði
Í ákvörðuninni er einnig að finna skilgreiningu á virkum og óvirkum markaðssvæðum, þ.e. svæði sem póstrekendur myndu annað hvort ekki veita þjónustu og/eða þjóna með öðrum hætti en reglur um alþjónustu kveða á um. Miðað við þær forsendur sem PFS gengur út frá í sinni ákvörðun er skipting á milli virkra og óvirkra svæða tilgreind í viðauka I. við ákvörðunina og í viðauka II. má sjá skiptinguna eftir póstnúmerum. Er heildarskiptingin eftirfarandi:
| Heimili | Vinnustaður | Samtals | Hlutfall |
Virk | 116.489 | 14.409 | 130.898 | 85% |
Óvirk | 19.195 | 3.883 | 23.078 | 15% |
Samtals | 135.684 | 18.292 | 153.976 | 100% |
Kostnaður Íslandspósts af alþjónustu
Með bráðabirgðaákvörðun stofnunarinnar nr. 29/2019 var einnig kveðið á um svokallað varúðarframlag til handa Íslandspósti. Í ákvörðun stofnunarinnar er lýst helstu reglum sem gilda um útreikninga á alþjónustukostnaði félagsins (hreinum kostnaði) sem og kveðið á um að uppgjöri varúðarframlagsins skuli vera lokið í síðasta lagi þann 1. apríl 2021.
Til að tryggja gagnsæi um umfang kostnaðar ÍSP af þeirri þjónustu sem fellur undir alþjónustu var fyrirtækinu gert að skipta þeim kostnaði í fernt:
• Hreinn kostnaður vegna landpóstsdreifingar, sbr. viðauki II.
• Hreinn kostnaður vegna dreifingar í þéttbýliskjörnum með undir 750 fyrirtækjum/heimilum, sbr. viðauki II.
• Hreinn kostnaður vegna sömu gjaldskrár um land allt fyrir vörur innan alþjónustu, sbr. 2. mgr. 17. gr. laga um póstþjónustu, sbr. kafli 2.11.
• Hreinn kostnaður vegna blindrasendinga, sbr. kafli 2.12.
Íslandspóstur skal gera grein fyrir helstu forsendum útreikninga félagsins varðandi hvert og eitt af þessum atriðum.
Í ákvörðuninni er einnig kveðið á um eftirlit með gjaldskrá Íslandspósts, bókhaldslega aðgreiningu sem og eftirlit með fjárhagsstöðu félagsins o.fl.
Sjá einnig Samráðsskjal vegna alþjónustu í pósti frá því í júní 2020
