Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Farsími og farnet

Farsímasamband er hluti af daglegu lífi flestra á Íslandi. Fjarskiptastofa vinnur að því að farsímasamband sé áreiðanlegt, öruggt og stöðugt um allt land. Stofnunin veitir einnig upplýsingar um þau tæki og kerfi sem gera sambandið mögulegt.

Hér finnur þú upplýsingar um farnet, hvernig það virkar og hvaða úrræði eru til staðar ef sambandið er ótryggt.

Hvernig farnet virka

Farnet (áður nefnt farsímanet) byggir á þráðlausum tengingum milli síma og fjarskiptasenda sem eru á víð og dreif um landið. Þegar þú hringir, sendir skilaboð eða notar netið ferðast gögnin um farnetið og áfram í gegnum netkerfi fjarskiptafyrirtækja.

Á Íslandi eru almenn farsímanet byggð upp á eftirfarandi tækni:

  • 5G – nýjasta farnetskynslóðin með mun meiri hraða, styttri biðtíma og betri afköstum

  • 4G/LTE – hraðvirkt og traust, notað víða um land

  • 3G/2G – eldri kerfi sem nú eru hætt í notkun

Með uppbyggingu 5G eykst bæði gæði þjónustu og möguleikar á nýjum tæknilausnum, svo sem sjálfvirkum kerfum, hágæða fjarfundum og betra sambandi á fjölmennum stöðum.

Hvernig finn ég besta valkostinn?

Ef þú ert að velja þjónustuaðila eða skoða lausnir:

  • berðu saman útbreiðslu á þínu svæði

  • skoðaðu hvaða netkerfi tækin þín styðja

  • athugaðu hvort þjónustuaðilinn styðji VoLTE og VoWiFi

  • hafðu samband við þjónustuver ef þú ert í vafa