Fara beint í efnið
Blóðbankinn Forsíða
Blóðbankinn Forsíða

Blóðbankinn

Járn í blóði

Járn og blóðrauði eru mæld í blóði við hverja blóðgjöf. Tilgangur eftirlitsins er að koma í veg fyrir járnskort en við blóðgjöf tapast u.þ.b. 250 mg járns úr líkamanum.  

Lágmarksgildi fyrir blóðgjöf

Blóðrauði (hemoglobin) 

  • Konur: 125 g/L   

  • Karlar:  135 g/L

Járnbirgðir (S-ferritin)

  • Nýir gjafar: 16 µg/L    

  • Virkir gjafar: 10 µg/L

Járnskortur og  blóðleysi geta þó stafað af mörgum öðrum þáttum. Ef spurningar vakna um heilsufar vinsamlegast hafið samband við heilsugæslulækni.

Óskir þú eftir nánari upplýsingum er þér velkomið að hringja í Blóðbankann.

Fræðslubæklingar um járn