Blóðbankinn uppfærir reglur um hæfi blóðgjafa til að gefa blóð.
1. september 2026
Blóðbankinn er að uppfæra reglur um hæfi blóðgjafa til að gefa blóð.

Blóðbankinn er að uppfæra reglur um hæfi blóðgjafa til að gefa blóð. Þetta er í samræmi við breytingar heilbrigðisráðuneytisins á reglugerð um söfnun, meðferð, varðveislu og dreifingu blóðs (441/2006).
Með þessum breytingum verður hæfi hvers einstaklings metið í stað þess að styðjast við hópaviðmið eins og áður hefur verið gert. Á síðu Blóðbankans á island.is má finna upplýsingar um þætti sem hafa áhrif á blóðgjöf. Spurningalisti sem blóðgjafar þurfa að svara við blóðgjöf hefur verið uppfærður. Einnig hefur bæklingi um smitvarnir verið breytt í bækling um einstaklingsbundið áhættumat. Á spurningalistanum eru nú tvær nýjar spurningar sem snúa að persónubundinni áhættu á smiti. Allir blóðgjafar þurfa að svara þeim.
Áður hefur Blóðbankinn innleitt kjarnsýrupróf (enska: Nucleic Acid Test), svokallað NAT próf til skimunar á blóðbornum smitsjúkdómum. Þessi próf eru næmari en eldri próf og því er öryggi blóðþega betur tryggt en áður
Breyttar reglur verða innleiddar 1. september 2026.
