250 blóðgjafir
3. október 2024
Aðalsteinn gaf blóðflögur i síðasta sinn en alls urðu gjafirnar 250
Ásamt Aðalsteini komu Guðrún dóttir hans og synirnir Hákon og Sigfús einnig til að gefa blóð. Aðalsteinn, sem gefið hefur undanfarin 50 ár, byrjaði sem blóðgjafi þegar Vilhelmína kennari hans í náttúrufræði í MR gaf nemendum frí til að gefa blóð.
Aðalsteinn situr í stjórn Blóðgjafafélags Íslands
og hvetur hann öll sem geta gefið blóð að gera það. „Blóð er ekki hægt að framleiða á tilraunastofu. Það þarf óeigingjarnt framlag til að þessi hluti heilbrigðiskerfisins haldist gangandi“ segir Davíð Stefán Guðmundsson, formaður Blóðgjafafélags Íslands.
Blóðgjöfin sjálf tekur aðeins um 10 mínútur en reikna má um klukkutíma í heildartíma með viðtali fyrir gjöf og rólegheitum á kaffistofunni eftir gjöf. Vönum blóðgjöfum getur staðið til boða að gefa hluta af blóði sínu, annaðhvort blóðflögur eða blóðvökva.
Aðalsteinn og synir hans voru að þessu sinni í blóðhlutagjöf, sem tekur 90 mínútur, en þá er notuð blóðfrumuskilja sem skilur frá þann blóðhluta sem safna á, en aðrir hlutar blóðsins renna aftur til blóðgjafans.