Blóðflokkar
ABO blóðflokkakerfið
Blóðflokkarnir heita A, B, O og AB. Þinn blóðflokkur ræðst af því hvort þú sért með A eða B mótefnavaka á rauðu blóðkornunum þínum.
O flokkur; hvorki A né B mótefnavakar
A flokkur; aðeins A mótefnavakar
B flokkur; aðeins B mótefnavakar
AB flokkur; bæði A og B mótefnavakar
Skipting blóðflokka hjá Íslendingum
Skipting blóðflokka er mismunandi eftir löndum. Á Íslandi er O flokkur algengastur og AB sjaldgæfastur.
O blóðflokkur - 54%
A blóðflokkur - 33%
B blóðflokkur - 10,5%
AB blóðflokkur - 2,5%
Rhesus flokkar
Mótefnavakar í Rh kerfinu eru prótein sem finnast á yfirborði rauðu blóðkornanna. Mikilvægasti mótefnavakinn er D mótefnavakinn og er stuðst við hann þegar Rhesus er ákveðinn. Ef þú ert með D mótefnavakann, þá ertu Rhesus jákvæður (RhD pos) og ef þú ert ekki með það þá ertu Rhesus neikvæður (RhD neg).
85% Íslendinga eru Rhesus pós (Rh+)
15% Íslendinga eru Rhesus neg (Rh-)
Neyðarblóð
O mínus blóð er neyðarblóð og er sérstakt fyrir þær sakir að lang flestir geta þegið það. Í því eru hvorki A, B eða Rhesus mótefnavakar.
Það er gefið:
einstaklingum sem eru í blóðflokki O mínus
fólki sem er í neyð, þegar ekki vinnst tími til að kanna blóðflokk blóðþega
ungabörnum og fyrirburum sem þurfa á blóðgjöf að halda
þegar skortur verður í öðrum blóðflokkum
Við miklar blæðingar getur einn blóðþegi þurft marga lítra af blóði, því þarf O mínus blóð að vera tiltækt á skurðstofum, neyðarmóttökum og helstu sjúkrastofnunum úti á landi.
Til þess að viðhalda nauðsynlegum O mínus blóðbirgðum þurfum við að fá blóðgjafa í O mínus blóðflokki daglega.
Því leggur Blóðbankinn ríka áherslu á að finna O mínus blóðgjafa.