Fara beint í efnið
Blóðbankinn Forsíða
Blóðbankinn Forsíða

Blóðbankinn

Húðflúr, tattú

Áhrif á blóðgjöf

Nýtt húðflúr: Má gefa blóð 4 mánuðum eftir húðflúrun.

Húðflúr fjarlægt: Má gefa blóð þegar sár eru gróin.

Húðflúrun með húðlit yfir gamalt húðflúr telst sem ný húðflúrun.

Microblading og varanleg förðun: Má gefa blóð fyrst 4 mánuðum eftir inngrip. Lagt að jöfnu við húðflúrun.

Undantekningar og athugasemdir

Athugsemd:

Það er leyfilegt að stinga á æð yfir húðflúruðu svæði við blóðgjöfina ef ekki eru merki ertingar eða sýkingar á stungustað. Nauðsynlegt að framkvæma skoðun á húðflúruðu svæði til að útiloka exem / útbrot og merki um ástungu í æð.

Til fróðleiks:

Lasermeðferð er notuð við margs konar aðgerðir. Virkni slíkrar meðferða liggur í að hita vefi og brenna. Laseraðgerð getur skilið eftir opin sár sem sýking getur borist í. Má gefa blóð eftir lasermeðferð þegar sár eru að fullu gróin.

Lykilorð: Húðflúr, Húðflúrun, tattoo, tattú, microblading, varanleg förðun

Gildir frá: 20. apríl 2026