Fara beint í efnið
Blóðbankinn Forsíða
Blóðbankinn Forsíða

Blóðbankinn

Kynhegðun

Áhrif á blóðgjöf

Til að tryggja öryggi blóðþega eru eftirfarandi spurningar lagðar fyrir alla blóðgjafa.

Ákveðin kynhegðun getur tengst aukinni hættu á blóðbornum sýkingum og því eru þessar upplýsingar mikilvægar við mat á hæfi til blóðgjafar.

  • Hefur þú stundað kynlíf með nýjum aðila síðastliðna 4 mánuði?

  • Hefur þú stundað áhættusamt kynlíf síðastliðna 4 mánuði?

Ef svarað er já, þarf að meta áhættu og mögulegan frest á blóðgjöf.

Sjá nánar:

Undantekningar og athugasemdir

Mikilvægt er að lesa vel bækling um: Einstaklingsbundið áhættumat - Smitvarnir

ATH: Spurningar eiga líka við um mögulega áhættu annars aðila í sambandi, ef svo á við.

Einstaklingur sem hefur andað að sér Poppers (alkyl nitrite) til að framkalla skammvinna vellíðan má gefa blóð.

Lykilorð: Kynhegðun, kynlíf, sex, einstaklingsbundið áhættumat, einstaklingsbundin áhætta, poppers, alkyl nitrite

Gildir frá: 2. september 2026