Fara beint í efnið
Blóðbankinn Forsíða
Blóðbankinn Forsíða

Blóðbankinn

COVID-19

Áhrif á blóðgjöf

Ef veikindi hafa liðið án einkenna og verkja, má gefa blóð sólarhring eftir að fullum bata er náð.

Ef hiti ( > 38°C) er til staðar þurfa 2 vikur að líða þar til gefa má blóð.

Athuga lyf, sjá lyfjalista.

Undantekningar og athugasemdir

Athugasemdir:

Bati eftir kórónuveirusýkingu. Gjafi telst hafa náð bata ef hitalaus, líðan góð og engin einkenni frá öndunarfærum.

Eftirköst COVID-19 (long covid). Meta þarf hvert tilvik fyrir sig. Lyktar- og bragðtap hindrar ekki blóðgjöf ef einkenni fara batnandi.

Lykilorð: Covid19, Covid-19, C19, Covid sýking, SARS CoV 2, veirusýking, kórónuveirusýking, long covid, eftirköst covid

Gildir frá: 16. apríl 2026