Zika veira
Áhrif á blóðgjöf
Vegna ferðalaga á svæði þar sem Zika er landlæg. Má gefa blóð 4 vikum eftir komu til Íslands og engin einkenni um smit eru til staðar.
Einstaklingur sem ferðast hefur til áhættusvæðis og greinst með veirusýkingu eða fengið einkenni smits: Frestur fyrir blóðgjöf er 6 mánuðir.
Þessi biðtími er nauðsynlegur til að tryggja öryggi blóðþega þar sem Zika getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir veikburða fólk.
Undantekningar og athugasemdir
Til fróðleiks:
Zika er veira sem berst til manna með moskítóflugnabiti. Moskítóflugurnar sem bera veiruna finnast á þessum svæðum: Mið Ameríku og Suður Ameríku, Suðaustur Asíu og eyjum Kyrrahafsins, Karabíska hafinu, hluta Afríku, hluta Bandaríkjanna og Suður Evrópu.
Zikaveira smitast ekki við almenna umgengni manna á milli en getur smitast með blóðgjöf, kynmökum og til barna í móðurkvið, sé móðir sýkt.
Moskítóflugur sem dreifa veirunni finnast ekki á Íslandi og því ekki talin hætta á að smitast hér. Fólk sem ferðast til landa þar sem veiran fyrirfinnst getur verið útsett án þess að vita af því.
Einkenni Zikaveirunnar: s.s. vægur hiti, útbrot, beinverkir, höfuðverkur, roði í augum eða vöðvaverkir.
Á Íslandi er ekki skimað fyrir Zikaveiru.
Til að tryggja öryggi blóðþega spyrjum við blóðgjafa hvert þeir hafi ferðast.
Starfsfólk Blóðbankans gefur upplýsingar um hvaða lönd / landsvæði teljast vera áhættusvæði fyrir þessar veirusýkingar m.t.t. blóðgjafa. Einnig er hægt að kanna hvort landið flokkast sem áhættusvæði fyrir blóðborna sjúkdóma á heimasíðu: JPAC
Lykilorð: Zika veira, hitabeltisveirusýkingar, Tropical virus infections
Gildir frá: 26. febrúar 2026
