Fara beint í efnið
Blóðbankinn Forsíða
Blóðbankinn Forsíða

Blóðbankinn

Dengue veira

Áhrif á blóðgjöf

  • Vegna ferðalaga á svæði þar sem Dengue er landlæg. Má gefa blóð 4 vikum eftir komu til Íslands og engin einkenni um smit eru til staðar.

  • Einstaklingur sem ferðast hefur til áhættusvæðis og greinst með veirusýkinguna eða fengið einkenni smits: Frestur fyrir blóðgjöf er 6 mánuðir eftir að bata er náð.

Þessi biðtími er nauðsynlegur til að tryggja öryggi blóðþega þar sem Dengue getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir veikburða fólk.

Undantekningar og athugasemdir

Til fróðleiks:

  • Dengue er veira sem berst til manna með moskítóflugnabiti. Moskítóflugurnar sem bera veiruna finnast á þessum svæðum: Mið Ameríka og Suður Ameríka, Asía, Mið Afríka, hluta Bandaríkjanna og í Suður Evrópu.

  • Dengue smitast ekki við almenna umgengni manna á milli en getur smitast með blóðgjöf og til barna í móðurkvið sé móðir sýkt.

  • Moskítóflugur sem dreifa veirunni finnast ekki á Íslandi og því ekki talin hætta á að smitast hér. Fólk sem ferðast til landa þar sem veiran fyrirfinnst getur verið útsett án þess að vita af því.

  • Einkenni Dengue veirunnar: s.s. hár hiti, mikinn höfuðverkur, verkur bak við augun, beinverkir, vöðvaverkir, ógleði, uppköst, eitlastækkanir.

  • Á Íslandi er ekki skimað fyrir Dengue.

  •  Til að tryggja öryggi blóðþega spyrjum við blóðgjafa hvert þeir hafi ferðast.

Starfsfólk Blóðbankans gefur upplýsingar um hvaða lönd / landsvæði teljast vera áhættusvæði fyrir þessar veirusýkingar m.t.t. blóðgjafa. Einnig er hægt að kanna hvort landið flokkast sem áhættusvæði fyrir blóðborna sjúkdóma á heimasíðu: JPAC

Lykilorð: Dengue, moskítóbit, hitabeltisveirusýkingar

Gildir frá: 26. febrúar 2026