Fara beint í efnið
Blóðbankinn Forsíða
Blóðbankinn Forsíða

Blóðbankinn

Chikungunya veira

Áhrif á blóðgjöf

  • Vegna ferðalaga á svæði þar sem Chikungunya veira er landlæg. Má gefa blóð 4 vikum eftir komu til Íslands og engin einkenni um smit eru til staðar.

  • Einstaklingur sem ferðast hefur til áhættusvæðis og greinst með veirusýkinguna eða fengið einkenni smits: Frestur fyrir blóðgjöf er 6 mánuðir eftir að bata er náð.

Þessi biðtími er nauðsynlegur til að tryggja öryggi blóðþega þar sem Chikungunya getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir veikburða fólk.

Undantekningar og athugasemdir

Til fróðleiks:

  • Chikungunya er veira sem berst til manna með moskítólfugnabiti. Moskítóflugurnar sem bera veiruna finnast á þessum svæðum: Suðaustur Asíu og á Indlandsskaga, eyjum Karíbahafsins, Afríku hluta Evrópu og á sumum eyjum Kyrrahafsins.

  • Chikungunya veira smitast ekki við almenna umgengni manna á milli en getur smitast með blóðgjöf.

  • Moskítóflugur sem dreifa veirunni finnast ekki á Íslandi og því er ekki talin hætta á að smitast á Íslandi. Fólk sem ferðast til landa þar sem veiran fyrirfinnst getur verið útsett án þess að vita af því.

  • Einkenni chikungunya:s.s. hár hiti, slæmir liðverkir, höfuðverkur, vöðvaverkir, ógleði, uppköst eða útbrot.

  • Á Íslandi er ekki skimað fyrir chikungunya.

  • Til að tryggja öryggi blóðþega spyrjum við blóðgjafa hvert þeir hafi ferðast.

Starfsfólk Blóðbankans gefur upplýsingar um hvaða lönd / landsvæði teljast vera áhættusvæði fyrir þessar veirusýkingar m.t.t. blóðgjafa. Einnig er hægt að kanna hvort landið flokkast sem áhættusvæði fyrir blóðborna sjúkdóma á heimasíðu: JPAC

Lykilorð: Chikungunya veira, hitabeltisveirusýking, Tropical virus infection

Gildir frá: 27. febrúar 2026