A04 - Lyf við uppköstum og lyf við ógleði
A04A
Áhrif á blóðgjöf
Má ekki gefa blóð vegna undirliggjandi sjúkdóms.
Undantekningar og athugasemdir
Undantekning:
A04AA: (Dæmi: Ondansetron) Má gefa blóð 2 dögum eftir síðasta skammt ef notað vegna mígrenis.
A04AD01: (Dæmi: Scopoderm) við bílveiki, sjóveiki: Má gefa blóð 24 klukkutímum eftir að plásturinn hefur verið tekinn af húð. Læsa plasma til sjúklings í 7 daga þar á eftir.
Lykilorð: Dæmi: Ondansetron / Zofran / Cinveron, Aloxi, Akynzeo, Scopoderm, Aprepitant
Gildir frá: 16. apríl 2026
