Fara beint í efnið
Blóðbankinn Forsíða
Blóðbankinn Forsíða

Blóðbankinn

Speglun

Áhrif á blóðgjöf

Frestur fyrir blóðgjöf fer eftir því:

  • Hvort notuð séuð ósveignanleg eða sveigjanleg speglunartæki.

  • Hvort aðgerð hafi verið gerð eða ekki.

  • Hver sé ástæða fyrir spegluninni.

  • Hvort viðkomandi sé búinn að ná fullum bata.

Má ekki gefa blóð á meðan beðið er eftir niðurstöðum læknisfræðilegra rannsókna vegna ógreinds sjúkdóms eða sjúkdómseinkenna.

Sjá nánari útskýringar:

Undantekningar og athugasemdir

Nánari útskýringar:

  • Ósveigjanleg speglunartæki: Dæmi um aðgerðir: Gallblöðrutaka og kviðarholsspeglun (eru oftast gerðar með aðstoð ósveigjanlegs tækis, en getur endað í opinni skurðaðgerð) stuðningsaðgerð við þvagrás (TVT), barkaspeglun (t.d. eftirlit með raddböndum). Frestur fyrir blóðgjöf 1 mánuðir.

  • Sveigjanleg speglunartæki: Dæmi um aðgerðir: Maga-/ ristilspeglun, gallgangaspeglun, blöðruspeglun, legspeglun, barka- og lungnaspeglun (Fiberscopy). Frestur fyrir blóðgjöf 4 mánuðir.

  • Frestur fyrir blóðgjöf vegna liðspeglana, leghálsspeglun er 2 vikur ef engin aðgerð er gerð.

  • Endaþarmsspeglun 1 dags frestur.

  • Liðspeglanir: Oftast gerðar með ósveigjanlegu speglunartæki en sveigjanleg speglunartæki geta líka verið notuð.

  • Berkjuspeglunartæki geta verið annað hvort sveigjanleg eða ósveigjanleg. Staðfesta þarf gerð tækis. Fiberscopy sem fer í gegnum nefið / nefholið er alltaf sveigjanlegt áhald. Eftirlit með raddböndum gegnum munn / munnhol er oftast gert með ósveigjanlegu áhaldi.

  • Speglun á meltingarvegi með hylki sem einstaklingur gleypir: Má gefa blóð ef einnota hylki eru notuð og orsök / niðurstöður koma ekki í veg fyrir blóðgjöf.

  • Við aðgerð í aðgerðaþjarki (vélmenni notað við skurðaðgerðir) er möguleiki á að sveigjanleg speglunartæki séu notuð.

  • Ómskoðun á hjarta: Getur verið gert með ómtæki á bringu eða með sveigjanlegu spelgunartæki gegnum vélinda. Ef gert gegnum vélinda þá er frestur 4 mánuðir ef ástæða skoðunar leyfir blóðgjöf.

Til fróðleiks:

Erfitt getur verið að sótthreinsa sveigjanleg tæki sem notuð eru til speglana. Vitað er um tilfelli þar sem smit hefur borist á milli manna með slíkum tækjum.

Lykilorð: Speglun, speglanir, endoscopy, holsjárskoðun, holspeglun, speglunartæki, kviðspeglun, berkjuspeglun, barkaspeglun, laryngoscopy, barkakýlisspeglun, magaspeglun, ósveigjanleg speglun, sveigjanleg speglun, endaþarmsspeglun, ristilspeglun, kviðarholsspeglun (laparoscopy), gallblöðrutaka, kviðsjártækni, gallgangaspeglun, blöðruspeglun, legspeglun, leghálsspeglun, leggangaspeglun, liðspeglun, TVT

Gildir frá: 14. apríl 2026