Búseta og tungumál
Áhrif á blóðgjöf
Búseta og tungumál getur haft áhrif á hæfi blóðgjafa til að gefa blóð.
Einstaklingur sem ekki er fæddur/uppalinn á Íslandi má verða blóðgjafi 3 mánuðum eftir flutning til landsins ef:
Kemur frá Ástralíu, USA, Evrópu, Kanada eða Nýja-Sjálandi (önnur svæði 6 mánaða frestur)
Hefur íslenska kennitölu og ætlar að búa á Íslandi í a.m.k. 1 ár.
Skilið og talað annaðhvort íslensku eða ensku.
Sjá nánar:
Undantekningar og athugasemdir
Einstaklingar frá öðrum löndum geta gefið blóð ef minnst 6 mánuðir hafa liðið frá flutningi til landsins og reglur varðandi ferðalög blóðgjafa eru ekki fyrirstaða.
Blóðgjafar verða að geta:
Skilið allt blóðgjafarferlið.
Skilið allar spurningar á heilsufarsblaði án aðstoðar.
Ekki er leyfilegt að hafa með sér túlk, eða aðstandanda, til að túlka fyrir sig.
Lykilorð: Búseta, tungumál, erlendur ríkisborgari, túlkur, útlendingur
Gildir frá: 6. júlí 2026
