Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 9. sept. 2023

323/2023

Reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga.

I. KAFLI Almenn ákvæði.

1. gr. Markmið, gildissvið o.fl.

Markmið reglugerðar þessarar er að stuðla að öruggri framkvæmd íbúakosninga á vegum sveitarfélaga.

Reglugerð þessi mælir fyrir um þær lágmarkskröfur sem gerðar eru til framkvæmdar eftirfarandi íbúakosninga sem fram fara á vegum sveitarfélaga á grundvelli sveitarstjórnarlaga:

  1. Kosning í nefnd fyrir hluta sveitarfélags, sbr. 38. gr. sveitarstjórnarlaga.
  2. Atkvæðagreiðsla um einstök málefni sveitarfélags, sbr. 1. mgr. 107. gr. sveitarstjórnarlaga.
  3. Atkvæðagreiðsla um sameiningar sveitarfélaga, sbr. 3. mgr. 119. gr. sveitarstjórnarlaga.

Íbúakosning sem fram fer á vegum sveitarfélags skal fara fram á grundvelli sveitarstjórnarlaga, reglugerðar þessarar og reglna sem sveitarfélagið setur, sbr. 2. gr.

Reglugerð þessi gildir ekki um atkvæðagreiðslu sem fram fer með rafrænum hætti, sbr. 134. gr. sveitarstjórnarlaga.

Leita skal til landskjörstjórnar vegna atkvæðakassa og innsigla í tengslum við framkvæmd íbúakosningar en landskjörstjórn kemur að öðru leyti ekki að íbúakosningum sveitarfélaga.

Sveitarfélög skulu standa straum af kostnaði við íbúakosningar sem fram fara á vegum þeirra. Kostnaður vegna sameiningarkosningar skal deilast á viðkomandi sveitarfélög í samræmi við íbúafjölda þeirra.

2. gr. Reglur sveitarfélaga um íbúakosningar.

Sveitarfélag skal setja sér reglur um íbúakosningar sem fram fara á vegum þess. Sveitarfélagi er heimilt að setja reglur sem gilda eingöngu um einstaka íbúakosningu. Í reglum sveitarfélags er heimilt að mæla fyrir um ítarlegri kröfur til framkvæmdar kosningar en leiðir af reglugerð þessari en ekki er heimilt að gera vægari kröfur.

Sveitarfélög skulu setja sér sameiginlegar reglur um atkvæðagreiðslu sem fram fer vegna sameiningar þeirra á grundvelli 119. gr. sveitarstjórnarlaga. Heimilt er að ákveða að sameiningarkosning fari fram á grundvelli reglna sem eitt sveitarfélag hefur sett.

Reglur um íbúakosningar skulu birtar í Stjórnartíðindum eigi síðar en á sama tíma og íbúakosning er auglýst.

Reglur um íbúakosningar skulu tryggja að atkvæðagreiðsla sé leynileg og atkvæðisréttur sé jafn, sbr. 2. mgr. 133. gr. sveitarstjórnarlaga.

Ef misræmi er á milli reglugerðar þessarar og reglna sveitarfélags um íbúakosningar gildir reglugerð þessi.

Fyrirmynd að reglum sveitarfélags um íbúakosningar er í viðauka við reglugerð þessa.

3. gr. Kosningarréttur.

Rétt til þátttöku í íbúakosningu sveitarfélags eiga þau sem kosningarrétt eiga í sveitarfélaginu við kosningar til sveitarstjórnar samkvæmt kosningalögum.

Sveitarstjórn er þó heimilt að miða kosningaaldur í íbúakosningu við 16 ár, sbr. 4. mgr. 133. gr. sveitarstjórnarlaga. Miða skal við að kjósandi hafi náð þeim aldri sem kosningarréttur miðar við á lokadegi kosningar.

4. gr. Kjörskrá.

Þjóðskrá Íslands skal gera kjörskrá fyrir íbúakosningu sveitarfélaga. Notast skal við prentaða kjörskrá sem Þjóðskrá Íslands er heimilt að afhenda með rafrænum hætti.

Í reglum um íbúakosningar skal mæla fyrir um að enginn geti neytt kosningarréttar nema nafn hans sé á kjörskrá þegar kosning fer fram. Á kjörskrá hvers sveitarfélags við íbúakosningar eru þau sem hafa kosningarrétt, sbr. 3. gr. og skráð voru með lögheimili í sveitarfélaginu samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár klukkan 12 að hádegi, 38 dögum áður en atkvæðagreiðsla hefst.

Um auglýsingu kjörskrár vegna íbúakosninga sveitarfélaga gilda 1. og 2. mgr. 30. gr. kosningalaga. Um leiðréttingar á kjörskrá og kærur vegna leiðréttinga á kjörskrá gilda 32. gr. og 33. gr. kosningalaga. Ekki skal gera leiðréttingar á kjörskrá eftir að kosning er hafin.

5. gr. Stjórnsýsla íbúakosninga.

Í reglum um íbúakosningar skal mæla fyrir um að sveitarstjórn kjósi kjörstjórn sem ber ábyrgð á stjórnsýslu og framkvæmd íbúakosninga. Fjöldi fulltrúa skal vera oddatala en að öðru leyti ákveður sveitarstjórn fjölda þeirra. Heimilt er að fela yfirkjörstjórn, sem kosin er á grundvelli kosningalaga, hlutverk kjörstjórnar vegna íbúakosninga.

Vegna sameiningar tveggja sveitarfélaga eða fleiri skulu viðkomandi sveitarstjórnir kjósa fulltrúa í sameiginlega kjörstjórn, eftir nánara samkomulagi þeirra. Miða skal við að hvert sveitarfélag hafi a.m.k. einn fulltrúa í kjörstjórn og að fjöldi nefndarmanna sé oddatala. Hlutverk kjörstjórnar er m.a. að:

  1. Birta auglýsingar um undirbúning, framkvæmd og tímasetningu kosninga.
  2. Útbúa kjörgögn, sbr. þó 15. gr. b., þ.m.t. eyðublöð vegna aðstoðarmanns kjósanda, sbr. 11. gr. og kjörgögn vegna póstkosningar, sbr. 10. gr.
  3. Veita almenningi, frambjóðendum, fjölmiðlum og öðrum sem annast framkvæmd kosninga upplýsingar, fræðslu og leiðbeiningar.
  4. Hafa samvinnu og samráð við viðeigandi aðila, félagasamtök og stofnanir við undirbúning og framkvæmd kosninga og birta niðurstöður kosninga opinberlega.

Í reglum um íbúakosningar skal mæla fyrir um að kjörstjórn skili að afloknum kosningum skýrslu til sveitarstjórnar um framkvæmd kosningar þar sem m.a. er fjallað um fjölda kjörstaða og opnunartíma þeirra, fjölda ónotaðra kjörseðla í vörslu kjörstjórnar og tilhögun vörslu, ágreiningsatkvæði, atkvæði sem send hafa verið í pósti og atkvæði sem hafa borist með pósti, sbr. 10. gr., atkvæði sem ónýtast, atkvæði sem berast eftir að kosningu er lokið, kjörsókn í sveitarfélagi, aðstoðarmenn kjósenda og ákvarðanir tengdar þeim, lok atkvæðagreiðslu og upphaf talningar, móttöku atkvæðakassa frá kjörstöðum, ákvarðanir um gildi atkvæða, niðurstöðu talningar, lok talningar og frágang og vörslu kjörgagna, eyðingu kjörgagna og aðrar ákvarðanir, afgreiðslur eða upplýsingar sem varða undirbúning og framkvæmd kosninga sem kjörstjórn telur rétt að upplýsa sveitarstjórn um.

Kjörstjórnarmaður telst vanhæfur til að úrskurða mál:

  1. er varðar maka hans eða sambúðarmaka, enda sé sambúðin skráð í þjóðskrá, eða þann sem er skyldur honum eða mæðgur í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur honum með sama hætti við ættleiðingu;
  2. ef að öðru leyti eru fyrir hendi þær aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlutdrægni hans í efa með réttu.

Ágreiningi um hæfi kjörstjórnarmanns og fulltrúa í landskjörstjórn má skjóta til úrskurðarnefndar kosningamála, sbr. 19. gr.

II. KAFLI Framkvæmd íbúakosninga.

6. gr. Kjörgögn.

Eftirfarandi atriði skulu eiga við um kjörgögn í reglum um íbúakosningar:

  1. Kjörseðlar við íbúakosningar skulu vera úr haldgóðum pappír sem prent eða skrift sést ekki í gegnum. Ekki er heimilt að einkenna kjörseðla með þeim hætti að þeir séu rekjanlegir til kjósanda.
  2. Við íbúakosningar á grundvelli 107. gr. sveitarstjórnarlaga sem eru bindandi og sameiningarkosningar, sbr. 119. gr. sveitarstjórnarlaga, skal hver kjörseðill við atkvæðagreiðslu vera a.m.k. 160 g/m² að þyngd, og skal brjóta þá saman í prentsmiðju með þeim hætti að óprentaða hliðin snúi út. Við slíkar kosningar skal jafnframt miða fjölda prentaðra kjörseðla að lágmarki við áætlaðan fjölda kjósenda á kjörskrá að viðbættu 1%.
  3. Vegna atkvæðagreiðslu með pósti eru kjörgögn atkvæðaseðill, umslag fyrir atkvæðaseðil, fylgibréf og sendiumslag. Þegar atkvæðaseðill er sendur kjósanda skal nota sama atkvæðaseðil og notaður er við kosninguna. Þegar notast er við atkvæðaseðil sem prentaður er út af vefsíðunni island.is er ekki þörf á að gera sérstakar kröfur um tegund pappírs. Ef kjörgögn eru sótt rafrænt, þarf kjósandi að leggja til tvö umslög, annað fyrir atkvæðaseðil og hitt fyrir sendiumslag.
  4. Notast skal við atkvæðakassa úr haldgóðum krossvið, eða sambærilegu efni, með loki á hjörum af hæfilegri stærð og þannig búinn að unnt sé að læsa honum. Lok skal vera úr sama efni, með nægjanlega langri rifu þannig að unnt sé að koma atkvæðaseðli þar ofan í. Rifa skal formuð með þeim hætti að ekki sé unnt að ná seðli upp úr kassanum. Tryggja skal að ekki sé unnt að koma pappír á milli loks og kassa á atkvæðakössum. Í upphafi atkvæðagreiðslu skal ganga úr skugga um að atkvæðakassi sé tómur og skal hann síðan innsiglaður með innsigli sem landskjörstjórn lætur í té. Innsigla skal rauf atkvæðakassa þegar hann er fullur eða atkvæðagreiðslu er lokið nema talið sé í sama rými að afloknum kosningum.
  5. Við sameiningarkosningar á grundvelli 119. gr. sveitarstjórnarlaga og íbúakosningar á grundvelli 107. gr. sveitarstjórnarlaga sem eru bindandi, skulu kjörstjórn og fulltrúar hennar varðveita ónotaða kjörseðla í innsigluðu íláti eða fyrir luktum dyrum sem jafnframt skulu innsiglaðar. Við aðrar íbúakosningar sveitarfélaga skulu ónotaðir kjörseðlar varðveittir með tryggilegum hætti.
  6. Eftir talningu atkvæða skulu kjörseðlar varðveittir með tryggum hætti þangað til kærufrestur er liðinn. Eigi síðar en ári eftir að atkvæðagreiðslu er lokið skal kjörstjórn eyða notuðum og ónotuðum atkvæðaseðlum enda sé þá ágreiningsmálum um gildi og framkvæmd kosninga lokið.
  7. Að öðru leyti er sveitarstjórn heimilt mæla fyrir um frekari reglur um kjörgögn og frágang þeirra sem hafa þann tilgang að tryggja öryggi og kosningaleynd.

7. gr. Tímabil atkvæðagreiðslu.

Í reglum um íbúakosningar skal mæla fyrir um að atkvæðagreiðsla fari fram á tilteknu tímabili sem minnst skal vara í tvær vikur og að hámarki fjórar vikur, sbr. þó b-lið 16. gr. Ekki er heimilt að hefja atkvæðagreiðslu fyrr en 36 dögum eftir að til hennar er boðað.

Tíu dögum áður en til atkvæðagreiðslunnar er boðað skal tilkynna á vefsíðu sveitarfélags að fyrirhuguð sé íbúakosning á vegum sveitarfélagsins. Í tilkynningunni skal jafnframt fjalla um þær reglur sem fram koma um kjörskrá í 3. mgr. 4. gr. og 29. gr. kosningalaga. Á sama tíma skal upplýsa Þjóðskrá Íslands um boðaða atkvæðagreiðslu og á hvaða tímabili hún fer fram.

8. gr. Kjörstaðir.

Eftirfarandi atriði skulu eiga við um kjörstaði í reglum um íbúakosningar:

  1. Í reglum um íbúakosningar skal koma fram fjöldi kjörstaða og opnunartími þeirra. Heimilt er að ákveða að sveitarstjórn, byggðarráð eða kjörstjórn ákveði kjörstaði, opnunartíma og kjördeildir fyrir hverja íbúakosningu. Reglulegur opnunartími skal vera á a.m.k. einum kjörstað innan sveitarfélagsins á því tímabili sem atkvæðagreiðsla á sér stað, t.d. á skrifstofu sveitarfélagsins. Heimilt er að slíkur kjörstaður sé hreyfanlegur, enda sé jafnræðis gætt við veitingu þeirrar þjónustu. Leitast skal við að fjöldi kjörstaða og opnunartími þeirra sé í samræmi við fjölda íbúa og vegalengdir innan sveitarfélagsins.
  2. Hvert sveitarfélag er ein kjördeild, nema sveitarstjórn, byggðarráð eða kjörstjórn ákveði að skipta því í fleiri kjördeildir. Ef sveitarfélagi er skipt upp í kjördeildir er kjósanda einungis heimilt að greiða atkvæði í sinni kjördeild. Á sama kjörstað mega vera fleiri en ein kjördeild og kjördeildir skal að jafnaði tölusetja til aðgreiningar.
  3. Heimilt er að flytja kjördeild frá einum kjörstað til annars í ákveðinn tíma, en óheimilt er að hafa sömu kjördeild opna á tveimur stöðum samtímis.
  4. Í auglýsingu um íbúakosningar skal koma fram á hvaða tíma atkvæðagreiðsla fer fram, fjöldi kjörstaða og fjöldi kjördeilda eftir atvikum, og aðrar nauðsynlegar leiðbeiningar varðandi atkvæðagreiðsluna.
  5. Kjörstjórn eða fulltrúi kjörstjórnar skal gæta þess að ekki fari fram kosningaáróður eða kosningaspjöll né önnur starfsemi sem truflar eða hindrar framkvæmd íbúakosninga á og við kjörstað. Á hverjum kjörstað skal vera aðstaða þar sem hægt er að greiða atkvæði án þess að aðrir geti séð hvernig kjósandi greiðir atkvæði.
  6. Leitast skal við að atkvæðagreiðsla fari einnig fram innan sveitarfélags þar sem kjósendur eiga erfitt um vik að mæta á kjörstað, svo sem þar sem kjósendur eru með lögheimili á heilbrigðisstofnunum, stofnunum fyrir fatlað fólk og fangelsum.
  7. Atkvæðagreiðsla skv. f-lið fer fram með þeim hætti að ákveða skal sérstaka kjördeild fyrir staði þar sem kjósendur eiga erfitt um vik að mæta á kjörstaði. Atkvæðagreiðsla fyrir viðkomandi kjördeild skal einnig fara fram á þeim kjörstað sem er með reglulegan opnunartíma, nema á því tímabili sem atkvæðagreiðsla fer fram á viðkomandi stofnun. Kjörstjórn auglýsir atkvæðagreiðslu skv. f-lið með a.m.k. 5 daga fyrirvara á vefsíðu sveitarfélagsins og á viðkomandi stofnunum.

9. gr. Framkvæmd atkvæðagreiðslu.

Eftirfarandi atriði skulu eiga við um framkvæmd atkvæðagreiðslu í reglum um íbúakosningar:

  1. Kjósandi skal gera þeim sem sinnir atkvæðagreiðslunni grein fyrir sér, svo sem með því að framvísa persónuskilríkjum með nafni, kennitölu og mynd eða á annan fullnægjandi hátt að mati fulltrúa kjörstjórnar.
  2. Merkja skal við nafn kjósanda í kjörskrá áður en hann neytir kosningarréttar síns. Eigi kjósandi rétt á að greiða atkvæði samkvæmt kjörskránni skal fulltrúi kjörstjórnar afhenda kjósanda kjörseðil. Þegar kjósandi hefur tekið við kjörseðlinum fer hann með hann þar sem hægt er að greiða atkvæði án þess að aðrir geti séð hvernig kjósandi greiðir atkvæði.
  3. Kjósandi markar með skriffæri eða stimpli sem kjörstjórn leggur til X í ferning framan við þann svarkost á kjörseðlinum sem hann greiðir atkvæði sitt, brýtur atkvæðið saman og leggur atkvæðið í kjörkassa í viðurvist kjörstjórnar eða fulltrúa á vegum hennar.
  4. Láti kjósandi sjá hvað er á seðli hans eða ef hann hefur gert mistök við merkingu hans er seðillinn ónýtur og má ekki leggja hann í atkvæðakassann. Á kjósandi þá rétt á að fá nýjan kjörseðil og skal hann þá afhenda kjörstjórninni hinn fyrri seðil.

10. gr. Atkvæði greitt með pósti.

Mæla skal fyrir um í reglum um íbúakosningar að kjósendum sem mælt er fyrir um í 4. mgr. sé heimilt að greiða atkvæði með pósti. Heimilt er að ákveða að atkvæði greitt með pósti fari fram eftir annarri hvorri eða báðum eftirfarandi leiðum:

  1. Kjósandi óskar eftir því við kjörstjórn að fá atkvæði sent til sín á það heimilisfang sem hann gefur upp. Í reglum sveitarfélags um íbúakosningar skal koma fram fyrirkomulag á umsókn kjósanda og hvenær umsókn skal í síðasta lagi berast kjörstjórn. Atkvæðaseðill, ásamt sendiumslagi, kjörseðilsumslagi og fylgibréfi, skal þá sent til kjósanda á umbeðið heimilisfang. Kjósandi merkir við atkvæðið og leggur það í kjörseðilsumslagið í viðurvist tveggja lögráða votta eða lögbókanda. Kjósandi fyllir út fylgibréfið og fylgibréf og atkvæðaseðill eru síðan lögð í sendiumslagið.
  2. Kjósandi nálgast atkvæðaseðil og fylgibréf á vefsíðunni island.is eða á vefgátt sveitarfélagsins, með því að skrá sig inn með rafrænum skilríkum. Atkvæðaseðill og fylgibréf eru prentuð út og kjósandi merkir við atkvæðið og leggur það í umslag sem kjósandi útvegar sjálfur. Umslagið og fylgibréf eru lögð í annað umslag sem kjósandi útvegar einnig sjálfur.

Ef kjósandi þarfnast aðstoðar, skal fylgja þeim reglum sem fram koma í b-d-lið 11. gr. reglugerðarinnar. Í kosningu fyrir nefnd um hluta sveitarfélags má aðstoðarmaður ekki vera frambjóðandi eða maki, barn, systkini eða foreldri slíks frambjóðanda.

Kjósandi annast sendingu atkvæðis til kjörstjórnar og ber sjálfur kostnað af sendingu bréfsins.

Þegar atkvæði berst kjörstjórn, skal merkja við að kjósandi hafi kosið og leggja kjörseðilsumslagið óopnað í atkvæðakassa. Ekki skal taka til greina atkvæði sem berst til kjörstjórnar eftir að atkvæðagreiðslu er lokið.

Kveða skal á um að eingöngu eftirtaldir kjósendur, sem hafa kosningarrétt við íbúakosningu, geti greitt atkvæði með pósti, en að lágmarki skal geta um eftirtalda hópa:

  1. Námsmenn sem hafa kosningarrétt á grundvelli 2. mgr. 4. gr. kosningalaga, nr. 112/2021.
  2. Kjósendur sem hafa lögheimili á Íslandi en hafa aðsetur erlendis eða hafa aðsetur annars staðar en á lögheimili sínu vegna náms eða veikinda, sbr. 8.-11. gr. laga um lögheimili og aðsetur nr. 80/2018.
  3. Kjósendur sem ekki geta sótt kjörstað vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar.
  4. Aðilar sem sæta gæsluvist eða afplána refsivist í fangelsi.

Kjósandi skal lýsa því yfir í fylgibréfi að hann falli undir viðkomandi undanþágu til að kjósa í póstkosningu sem vottar eða lögbókandi skulu jafnframt staðfesta. Að öðru leyti skal ekki leita eftir frekari sönnun á því að kjósandi falli undir viðkomandi undanþágu.

Á fylgibréfi vegna póstkosningar skal eftirfarandi koma fram:

  1. Stuttar og skýrar leiðbeiningar um atkvæðagreiðsluna.
  2. Yfirlýsing kjósanda um að hann hafi án aðstoðar og án þess að nokkur annar hafi séð, ritað atkvæði á kjörseðil, sett atkvæði í umslag og límt umslag aftur.
  3. Reitur fyrir undirritun kjósanda, stað og dagsetningu.
  4. Yfirlýsing aðstoðarmanns um að aðstoð hafi verið veitt og fylgt hafi verið þeim reglum sem fram koma í b-d-lið 11. gr. reglugerðarinnar.
  5. Yfirlýsing tveggja votta eða lögbókanda sem votta auðkenni kjósanda, og aðstoðarmanns eftir atvikum, að kosningin hafi verið leynileg og að kjósandi, eða aðstoðarmaður eftir atvikum, hafi að kosningaathöfn lokinni lagt kjörseðilinn í kjörseðilsumslagið. Vottar skulu vera lögráða og geta kennitölu sinnar á yfirlýsingunni. Ef vottar eru erlendir skulu þeir geta um fæðingardag sinn og heimilisfang. Í kosningu fyrir nefnd um hluta sveitarfélags má vottur ekki vera frambjóðandi eða maki, barn, systkini eða foreldri slíks frambjóðanda og skal vottur staðfesta hæfi sitt.
  6. Ef við á skal liggja fyrir yfirlýsing kjósanda og votta eða lögbókanda, að kjósandi falli undir viðeigandi undanþágu, sbr. 4. mgr., til að geta kosið í póstkosningu.

11. gr. Aðstoðarmenn kjósenda.

Eftirfarandi atriði skulu eiga við um aðstoðarmenn kjósenda í íbúakosningum sveitarfélaga:

  1. Kjósandi á rétt á aðstoð við atkvæðagreiðslu og getur aðstoðarmaður sem fylgir kjósanda á kjörstað eða fulltrúi kjörstjórnar veitt hana.
  2. Aðstoð skal aðeins veitt ef kjósandi getur sjálfur skýrt þeim er aðstoðina veitir frá því hvernig hann vill greiða atkvæði. Aðstoðarmanni kjósanda eða fulltrúa kjörstjórnar sem aðstoðina veitir er skylt að fara að fyrirmælum kjósanda og eru þeir bundnir þagnarskyldu.
  3. Kjósandi skal aldrei þurfa að upplýsa eða greina frá því hvers vegna hann óskar aðstoðar og er kjörstjórn, eða fulltrúa kjörstjórnar eða öðrum þeim sem starfa við framkvæmd kosninga óheimilt að biðja kjósanda að skýra frá því hvers vegna hann óskar slíkrar aðstoðar.
  4. Sá sem veitir aðstoð við atkvæðagreiðslu skal veita hana í samræmi við þarfir og aðstæður kjósandans. Kjósanda skal sýnd sú nærgætni, lipurð og virðing sem þarfir og aðstæður hans kalla á hverju sinni.
  5. Við framkvæmd aðstoðar skal kjörstjórn eða fulltrúi kjörstjórnar tryggja að kosningin sé leynileg svo sem með því að loka kjörfundarstofu meðan á atkvæðagreiðslu með aðstoð stendur.
  6. Sé aðstoð veitt skal það skráð í skýrslu kjörstjórnar, þ.m.t. hver veitti aðstoðina.
  7. Aðstoðarmaður kjósanda skal gera kjörstjórn eða fulltrúa kjörstjórnar grein fyrir sér, svo sem með því að framvísa persónuskilríkjum með nafni, kennitölu og mynd, eða gera grein fyrir sér á annan fullnægjandi hátt. Aðstoðarmaður kjósanda skal vera að minnsta kosti 18 ára gamall. Í kosningu fyrir nefnd um hluta sveitarfélags má aðstoðarmaður ekki vera frambjóðandi eða maki, barn systkini eða foreldri slíks frambjóðanda.
  8. Aðstoðarmaður kjósanda skal undirrita staðfestingu á sérstöku eyðublaði sem sveitarfélag skal útbúa og geymir nafn og kennitölu kjósanda, aðstoðarmanns kjósanda og dagsetningu þegar aðstoð er veitt. Á eyðublaðinu skal aðstoðarmaður staðfesta hæfi sitt skv. g-lið ef við á og veita skal leiðbeiningar, sbr. b-d-lið. Fulltrúi kjörstjórnar skal jafnframt undirrita staðfestingu aðstoðarmanns.
  9. Ef aðstoðarmaður kjósanda uppfyllir ekki skilyrði skv. g-lið skal synja því að viðkomandi aðstoðarmaður veiti kjósanda aðstoð. Skal það skráð í skýrslu kjörstjórnar. Ákvörðun fulltrúa kjörstjórnar um synjun skal borin upp við kjörstjórn ef þess er óskað. Ákvörðun kjörstjórnar er endanleg.
  10. Kjörstjórn skal halda skrá um aðstoðarmenn kjósenda og óheimilt er að gerast aðstoðarmaður fleiri en þriggja kjósenda við sömu kosningu.

12. gr. Talning atkvæða.

Eftirfarandi atriði skulu eiga við um talningu atkvæða í íbúakosningum sveitarfélaga:

  1. Ekki er heimilt að hefja talningu atkvæða fyrr en öllum kjörstöðum hefur verið lokað á síðasta degi atkvæðagreiðslunnar.
  2. Talning atkvæða skal fara fram fyrir opnum dyrum svo að almenningi gefist kostur á að vera viðstaddur eftir því sem húsrúm leyfir. Viðstöddum ber að hlíta fyrirmælum kjörstjórnar og starfsfólks hennar á talningarstað. Heimilt er að vísa hverjum þeim af talningarstað sem veldur röskun eða truflun á flokkun eða talningu atkvæða.
  3. Kjörstjórn skal auglýsa a.m.k. sjö dögum fyrir lok atkvæðagreiðslu hvar og hvenær talning atkvæða fer fram. Heimilt er að auglýsa talningu eingöngu á vef sveitarfélags. Velja skal hentugt húsnæði fyrir talningu atkvæða þar sem aðgengi er gott.
  4. Kjörstjórn tilnefnir talningarstjóra sem skal hafa yfirumsjón með talningarferlinu. Atkvæði úr hverjum atkvæðakassa skulu talin og fjöldi þeirra stemmdur af við fjölda kjósenda sem greitt hafa atkvæði. Einnig skal fjöldi atkvæða úr hverjum atkvæðakassa stemmdur af við fjölda afhentra atkvæðaseðla, ónotaðra atkvæðaseðla sem skilað er og þeirra atkvæðaseðla sem hafa ónýst. Geta skal um afstemmingu atkvæðakassa í skýrslu kjörstjórnar. Ef a.m.k. tvær sjálfstæðar viðbótartalningar staðfesta fjölda atkvæða í atkvæðakassa er kjörstjórn heimilt að setja atkvæði í talningu. Leita skal skýringa á misræmi og skrá það í skýrslu kjörstjórnar ef talin er þörf á.
  5. Flokka skal atkvæðaseðla eftir svarkostum. Halda skal auðum atkvæðum, öðrum ógildum atkvæðum og vafaatkvæðum aðgreindum. Atkvæði skulu að minnsta kosti flokkuð í tveimur umferðum. Tryggja skal að starfsfólk sem flokkar atkvæði í fyrri umferð komi ekki að flokkun sömu atkvæða í síðari umferð. Að lokinni flokkun atkvæða skal talningarstjóri og þau sem aðstoða hann flytja flokkuð atkvæði eftir merkingu svarkosta á fráleggsborð.
  6. Þegar talning hefst hverju sinni skulu atkvæðaseðlar taldir í hæfilega bunka og settir í teygju með miða þar sem fjöldi atkvæða er tilgreindur. Atkvæðaseðlar sem ekki ná viðmiði heils bunka skulu settir í teygju og merktir með miða þar sem fjöldi atkvæða er tilgreindur. Atkvæðaseðlar skulu því næst endurtaldir af öðrum fulltrúa. Báðir talningarmenn skulu árita miða sem settir eru á bunkann með upphafsstöfum sínum þannig að ljóst sé að bunkinn hafi verið talinn tvívegis af sitthvorum talningarmanni. Miðar skulu merktir í áframhaldandi töluröð og skráðir undir því númeri í skrá kjörstjórnar þannig að hægt sé að rekja hvern bunka fyrir sig. Að lokinni talningu skal bunkum með atkvæðaseðlum komið fyrir á borði fyrir talin atkvæði þar sem þeir eru skráðir og fjöldi þeirra lagður saman. Fjöldi talinna atkvæða skal stemmdur við fjölda atkvæða sem komu til talningar hverju sinni.
  7. Í reglum um íbúakosningar sveitarfélaga skal koma fram hvernig kjörstjórn kynnir niðurstöðu talningar, svo sem hvort að það sé gert í heyrandi hljóði eða á vefsíðu sveitarfélagsins. Skal þess gætt að samtölu atkvæða beri saman við tölu þeirra sem atkvæði hafa greitt og að allt komi heim við samtölu afgangsseðla.
  8. Í kosningu um nefnd fyrir hluta sveitarfélags og í íbúakosningu á grundvelli 107. gr. sveitarstjórnarlaga sem ekki er bindandi, er heimilt að setja aðrar reglur um talningu atkvæða en þær sem fram koma í d-f-lið.

13. gr. Gölluð atkvæði.

Eftirfarandi atriði skulu gilda um gölluð atkvæði í íbúakosningum sveitarfélaga:

  1. Atkvæði skal meta ógilt ef:

    1. kjörseðill er auður,
    2. ekki má með öruggum hætti sjá hvaða svarkosti kjósandi hefur viljað greiða atkvæði sitt,
    3. ætla má að merki eða áletrun á kjörseðli séu sett af ásettu ráði til að gera seðilinn auðkennilegan,
    4. kjörseðill er ekki sá sem kjörstjórn hefur látið gera.
  2. Við mat á gildi atkvæðis þegar sveitarstjórn hefur ákveðið að spurningar á kjörseðli séu fleiri eða orðaðar með öðrum hætti, skal meta gildi hverrar spurningar sjálfstætt. Ekki skal meta atkvæði ógilt í heild þó kjósandi hafi ekki tjáð eða mistekist að tjá afstöðu sína til einstakra spurninga á kjörseðli, enda sé atkvæði að öðru leyti gilt.
  3. Þegar atkvæði er greitt með pósti telst það ógilt ef það er ekki í sérstöku atkvæðisumslagi, atkvæðisumslag er ekki lokað, fylgibréfið er ekki rétt útfyllt eða ef það er ekki rétt undirritað.
  4. Atkvæði skal ekki meta ógilt, þó að gallað sé, ef greinilegt er hvernig það á að falla nema það augljóslega brjóti í bága við einn eða fleiri stafliði 1. mgr. Þannig skal meta atkvæði gilt þó að ekki sé merkt í ferning við svarmöguleika en t.d. utan hans, þó að X sé ólögulegt, þó að hak sé sett í ferning í stað X o.s.frv.
  5. Ef ágreiningur verður innan kjörstjórnar um hvort atkvæði telst gilt, skal kjörstjórn úrskurða um það.
  6. Heimilt er að kveða á um með ítarlegri hætti hvenær atkvæði telst metið ógilt.

14. gr. Umboðsmenn.

Eftirfarandi atriði skulu eiga við um umboðsmenn í íbúakosningum:

  1. Við íbúakosningar um einstök málefni skv. 107. gr. sveitarstjórnarlaga og sameiningarkosningar skv. 119. gr. sveitarstjórnarlaga, skuli sveitarstjórn, byggðarráð eða kjörstjórn skipa umboðsmenn sem hafa það hlutverk að gæta ólíkra sjónarmiða við kosninguna, talningu atkvæða og úrlausn ágreiningsmála.
  2. Þau sem eru í framboði í nefnd fyrir hluta sveitarfélags, sbr. 38. gr. sveitarstjórnarlaga, eiga rétt á að skipa sér umboðsmann.
  3. Umboðsmenn eiga rétt á að vera viðstaddir undirbúning talningar, svo sem þegar tekið er á móti atkvæðakössum og þeir opnaðir, þegar tekið er á móti öðrum kjörgögnum eða við flokkun atkvæða. Þá eiga umboðsmenn rétt á að vera viðstaddir talningu atkvæða og fylgjast með framkvæmd hennar og uppgjöri. Að öðru leyti skal fjallað um réttindi og skyldur umboðsmanna og heimild þeirra til að hafa eftirlit með kosningunni í reglum sveitarfélaga um íbúakosningar.

15. gr. Atkvæðagreiðsla um einstök málefni.

Í reglum um íbúakosningar skal koma fram að sveitarstjórn ber ábyrgð á orðalagi og framsetningu þeirra spurninga sem lagðar eru fyrir íbúa í atkvæðagreiðslu um einstök málefni sveitarfélags, sbr. 107. gr. sveitarstjórnarlaga. Á kjörseðli skal koma skýrt fram spurning um hvort kjósandi samþykki þá tillögu sem borin er upp og gefnir tveir möguleikir á svari, "Já" eða "Nei". Sveitarstjórn getur ákveðið að spurningar og svarkostir á kjörseðli í atkvæðagreiðslu séu fleiri eða orðaðir með öðrum hætti.

Heimilt er að ákveða að íbúakosning um einstök málefni sveitarfélags fari fram eingöngu í hluta sveitarfélags. Slík atkvæðagreiðsla er háð því að Þjóðskrá Íslands geti gefið út kjörskrá fyrir þann hluta sveitarfélagsins sem um ræðir og einungis einstaklinga sem þar eru á kjörskrá og hafa kosningarrétt. Í auglýsingu sveitarfélagsins um atkvæðagreiðslu fyrir hluta sveitarfélags skal sá hluti sveitarfélags sem atkvæðagreiðslan nær til vera skýrt afmarkaður.

16. gr. Kosning í nefnd fyrir hluta sveitarfélags.

Sveitarstjórn ákveður hvernig kosið skal í nefnd fyrir hluta sveitarfélags. Heimilt er að ákveða að fram fari hlutfallskosning, óbundin kosning, eða hver sú tegund af kosningu sem sveitarstjórn telur heppilegasta.

Kjörgengur í nefnd fyrir hluta sveitarfélags er hver sá sem hefur kosningarrétt í sveitarfélaginu. Heimilt er mæla frekar fyrir um kjörgengi nefndarmanna í reglum sveitarfélags um íbúakosningar.

17. gr. Atkvæðagreiðsla vegna sameiningar sveitarfélaga.

Um atkvæðagreiðslu vegna sameiningar sveitarfélaga skal eftirfarandi eiga við:

  1. Samstarfsnefndin eða viðkomandi sveitarstjórnir skulu kynna íbúum sveitarfélaganna þá tillögu sem greiða skal atkvæði um og helstu forsendur hennar með a.m.k. 36 daga fyrirvara, svo sem með kynningarfundum og/eða dreifibréfum. Tillagan skal innan sama frests auglýst opinberlega í Lögbirtingablaði og í fjölmiðlum.
  2. Atkvæðagreiðsla vegna sameiningar sveitarfélaga skal vara í þrjár vikur.
  3. Sveitarstjórn lætur gera atkvæðaseðil til afnota við atkvæðagreiðslu vegna sameiningar sveitarfélaga. Form atkvæðaseðils skal staðfest af ráðuneyti sveitarstjórnarmála.

III. KAFLI Kosningu frestað, uppkosning og kærur.

18. gr. Kosningum frestað og uppkosning.

Í reglum um íbúakosningar skal mæla fyrir um að uppkosning fari fram ef kosning ferst fyrir af óviðráðanlegum orsökum eða ef kosning hefur verið úrskurðuð ógild. Þegar um uppkosningu er að ræða lýtur undirbúningur og framkvæmd kosninganna sömu reglum og með sömu kjörskrá og fyrri kosning.

19. gr. Gallar.

Í reglum um íbúakosningar skal mæla fyrir um að gallar á kosningu leiði ekki til ógildingar kosninga, nema líklegt sé að þeir hafi haft áhrif á úrslit kosninganna.

20. gr. Kærur vegna íbúakosninga.

Kærur um ólögmæti íbúakosninga skulu sendar úrskurðarnefnd kosningamála til úrlausnar innan sjö daga frá því að lýst var úrslitum kosninga. Úrskurðarnefnd kosningamála skal úrskurða innan fjögurra vikna frá því að kæra berst, nema mál sé mjög umfangsmikið og skal þá úrskurða innan sex vikna, sbr. 5. mgr. 133. gr. sveitarstjórnarlaga.

21. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 4. mgr. 133. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 14. mars 2023.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.