Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 2. maí 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 6. mars 2014 – 7. apríl 2015 Sjá núgildandi

237/2014

Reglugerð um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.

1. gr. Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að kveða á um samræmdar kröfur til starfrækslu loftfara.

2. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um starfrækslu flutningaflugs með flugvélum og þyrlum, þ.m.t. skoðanir á hlaði á loftförum flugrekenda sem eru undir öryggiseftirliti annars ríkis þegar þau lenda á flugvelli á Íslandi.

Í reglugerðinni er mælt fyrir um skilyrði fyrir því að gefa út, viðhalda, breyta, takmarka, fella tímabundið úr gildi eða afturkalla skírteini flugrekenda, sem stunda flutningaflug, sem nota loftför sem talin eru upp í b- og c-lið 1. mgr. 4. gr. reglugerðar (EB) nr. 216/2008.

Reglugerð þessi gildir ekki um flugrekstur, sem fellur undir gildissvið a-liðar 2. mgr. 1. gr. reglugerðar (EB) nr. 216/2008.

3. gr. Lögbært yfirvald og framkvæmd.

Samgöngustofa telst lögbært yfirvald samkvæmt reglugerð þessari og sér um framkvæmd hennar.

4. gr. Flugumsjón.

Flugrekendur, sem eru með sérstaka flugumsjón sem felst í undirbúningi og eftirfylgni á tilteknum þáttum flugs, skulu gera grein fyrir verksviði og ábyrgð starfsfólks sem sinnir flugumsjón í flugrekstrarhandbók.

Starfsfólk í flugumsjón skal fá þjálfun í samræmi við ICAO skjal nr. 7192 D3. Þjálfuninni skal lýst í D-hluta flugrekstrarhandbókar. Ekki er gerð krafa um að starfsfólk sem sinnir flugumsjón sé með skírteini flugumsjónarmanns.

5. gr. Trúnaðarmenn Samgöngustofu.

Samgöngustofu er heimilt að áskilja að fyrirsvarsmenn flugrekanda, þ.e. ábyrgðarmaður, flugrekstrarstjóri, tæknistjóri, yfirmaður þjálfunar, gæðastjóri, sanni kunnáttu sína og hæfni með sérstakri próftöku.

Að fenginni viðurkenningu Samgöngustofu ber þeim að starfa sem sérstakir trúnaðarmenn stofnunarinnar og skal mat Samgöngustofu meðal annars grundvallast á þeim forsendum. Komi í ljós að kunnátta eða hæfni fyrirsvarsmanns sem hlotið hefur viðurkenningu sé ábótavant eða fyrirsvarsmaður brýtur trúnað við Samgöngustofu getur hún fellt viðurkenningu sína niður til bráðabirgða eða að fullu. Samgöngustofa skal eiga endanlegt mat um viðurkenningu á trúnaðarmönnum.

6. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 965/2012 frá 25. október 2012 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 147/2013 frá 15. júlí 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 56 frá 10. október 2013, bls. 910.

7. gr. Refsiákvæði.

Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða refsingu samkvæmt 141. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum.

8. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 1. mgr. 31. gr., 4. mgr. 37. gr., 80. gr., 85. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast gildi 8. apríl 2014. Um leið falla reglugerð nr. 1263/2008, um flutningaflug flugvéla, með síðari breytingum, og reglugerð nr. 752/2007 um úttektir á öryggi loftfara, með síðari breytingum, úr gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 4. mars 2014.

Hanna Birna Kristjánsdóttir.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.