Fara beint í efnið

Lýðheilsa

Lýðheilsa er samheiti yfir heilsuvernd og forvarnir. Lýðheilsustarf miðar að því að viðhalda og bæta heilbrigði fólks og byggist á samstarfi ólíkra fræðigreina og tekur meðal annars til félags-, umhverfis- og efnahagsmála.

Góð heilsa felst í líkamlegu og andlegu jafnvægi og ber hver og einn ábyrgð á eigin heilsu og líðan.

Í boði eru fjölmargar aðferðir og leiðir til að bæta líkamlega jafnt sem andlega heilsu og er sjálfsagt að kynna sér þær til forvarna.

Á vef embættis landlæknis og á Heilsuveru er að finna ýmsar upplýsingar, fræðslu og ráð lýðheilsu, heilsueflingu og forvarnir.

Vert að skoða

Lög og reglugerðir