Við innflutning skráningarskyldra ökutækja þarf að greiða innflutningsgjöld (aðflutningsgjöld).
Undir skráningarskyld ökutæki falla meðal annars bifreiðar, eftirvagnar, hjólhýsi, mótorhjól, rafmagnshlaupahjól, rafmagnshjól og fleira. Sjá nánar um skráningarskyld ökutæki.
Gjöld
Innflutningsgjöldin eru:
vörugjald
virðisaukaskattur
úrvinnslugjald (á rafgeyma og hjólbarða sem fylgja ökutækinu)
Innflutningsgjöld eru greidd af tollverði ökutækisins. Tollverð ökutækis samanstendur af innkaupsverði, flutningsgjaldi og flutningstryggingu.
Þú setur inn tollverð, eiginþyngd ökutækis og upplýsingar um útblástur koltvísýrings (CO2) til að fá út heildarverð ökutækis (með innflutningsgjöldum) við komu til Íslands.
Ökutæki sem bera lægri innflutningsgjöld
Í ákveðnum tilfellum gilda sérstaklegar reglur til lækkunar eða niðurfellingu innflutningsgjalda.
Umhverfisvæn ökutæki sem eru alfarið knúin rafmagni, vetni eða metani eru undanþegin vörugjöldum.
Til að áætla verð ökutækis hingað komið þarf að útvega upplýsingar um:
innkaupsverð; sýna þarf fram á verð með framvísun reiknings
flutningsgjald; fæst hjá flutningsaðila
flutningstryggingu; fæst hjá flutningsaðila
Þessar upplýsingar (tollverð), ásamt upplýsingum um eiginþyngd og útblástur ökutækis eru settar inn í tollareiknivélina til að fá út áætlað heildarverð. Upplýsingar um eiginþyngd og útblástur er að finna í skráningarskírteini ökutækis.
Velja þarf flutningsaðila og bóka flutning fyrir ökutækið.
Margir flutningsaðilar sjá um að gera tollskýrslu en einnig má velja annan viðurkenndan tollmiðlarar til að gera skýrsluna.
Tollskýrsla er unnin með aðstoð tollmiðlara sem sér um öll samskipti við tollyfirvöld fyrir þína hönd. Tollafgreiðsluferlið tekur almennt um 3-5 virkir daga. Hægt er að fylgjast með ferlinu í Tollalínunni eða hafa samband við flutningaðila. Ef athugasemdir eru gerðar við tollskýrslu hefur flutningsaðili samband.
Greiðsla innflutningsgjalda
Upplýsingar um greiðslu berst frá tollmiðlara þegar tollskýrslan er samþykkt. Þá skal greiða innflutningsgjöld samkvæmt leiðbeiningum frá tollmiðlara.
Flutningsaðili lætur vita þegar sækja má ökutækið til að fara með í skoðun. Fylgja skal leiðbeiningum miðlara og Samgöngustofu.