Handbók vegna stöðlunar á stöðu- og framvinduprófum Matsferils
Þjónustuaðili:
Leiðbeiningar vegna stöðlunar á stöðu- og framvinduprófum Matsferils
Hér má nálgast pdf útgáfu af leiðbeiningunum.
Matssvið Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu
17. mars – 11. apríl 2025
Hvaða nemendur taka þátt í stöðlun prófanna?
Þegar próf eru stöðluð er mikilvægt að sem flestir nemendur sem lenda í stöðlunarúrtaki þreyti prófin. Annars er hætta á að upplýsingarnar um þyngd atriða verði ekki réttar og að aldursbundnu viðmiðin sem búin verða til á grunni þeirra gefi ranga mynd. Við mælumst því til að allir nemendur í 4.-10. bekk, sem fylgja sínum árgangi í námi, og geta þar með uppfyllt aldursbundin hæfniviðmið aðalnámskrár, taki prófin. Það á þó ekki við um nemendur með einstaklingsnámskrá, í stærðfræði og/eða íslensku, þar sem vikið er frá ákvæðum aðalnámskrár. Þeir ættu að vera undanþegnir því að þreyta prófin.
Ekki þarf að sækja sérstaklega um undanþágu núna þar sem um stöðlun er að ræða en óskað verður eftir almennum, ópersónugreinanlegum upplýsingum um þá nemendur sem ekki taka þátt í stöðluninni. Hér er skjal sem skólar eru beðnir um að hlaða niður og fylla út vegna nemenda sem taka ekki prófin og senda MMS (matsferill@mms.is) þegar þeir hafa lokið öllum fyrirlögnum.
Til viðmiðunar ætti hlutfall nemenda sem eru undanþegnir þátttöku, ekki að vera hærra en 10-11% prósent hjá öllum árgöngum. Hér er stuðst við meðaltalsþátttökutölur á samræmdum könnunarprófum á árabilinu 2018-2021 og almenn viðmið um hlutfall nemenda með námsvanda.
Samkvæmt aðalnámskrá má gera ráð fyrir að nemendur fylgi hæfniviðmiðum í íslensku sem öðru tungumáli í tvö til fjögur ár en þá eigi þeir að vera færir um að fylgja aðalnámskrá í íslensku samkvæmt aldurstengdum viðmiðum, mögulega með einhverjum stuðningi. Á þessum tveimur til fjórum árum eiga nemendur að vera búnir að ná hæfniþrepi 3 eins og því er lýst í kafla 19.3 í aðalnámskrá (sjá einnig Hæfnisvið og hæfnirammar í íslensku sem öðru tungumáli: Fylgirit með kafla 19.3 í aðalnámskrá, Menntamálstofnun, 2022). Meginreglan er því sú að hafi nemandi fylgt hæfniviðmiðum í íslensku sem öðru tungumáli í tvö til fjögur ár á það að þreyta prófið en getur, eftir atvikum, fengið stuðning við próftöku ef þörf krefur en hann má þó ekki hafa áhrif á réttmæti prófsins