Fara beint í efnið

28. febrúar 2020

Fréttatilkynning vegna kórónaveirunnar COVID-19 28.02.2020

Hér á landi hafa nú 65 sýni verið rannsökuð af sýkla og veirufræðideild Landspítalans vegna Kórónuveirunnar (COVID-19). Reyndust þau öll neikvæð. Samtals hafa 40 þjóðir tilkynnt um tilfelli um heim allan og sífellt fjölgar þeim sem ná sér af veikindunum. Áhættumat og skilgreind áhættusvæði eru óbreytt.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Hér á landi hafa nú 65 sýni verið rannsökuð af sýkla og veirufræðideild Landspítalans vegna Kórónuveirunnar (COVID-19). Reyndust þau öll neikvæð. Samtals hafa 40 þjóðir tilkynnt um tilfelli um heim allan og sífellt fjölgar þeim sem ná sér af veikindunum. Áhættumat og skilgreind áhættusvæði eru óbreytt. Nánar neðst.

Mikið álag hefur verið á Heilsugæslunni og Læknavaktinni sem sinnir þjónustu í síma 1700 við einstaklinga sem tekin eru sýni frá vegna veirunnar. Ákveðið hefur verið að auka stuðning og aðbúnað vegna þessa.

Á vef embættis landlæknis má nú nálgast upplýsingar fyrir börn og ungmenni. Þessar upplýsingar verða uppfærðar.

Á upplýsingafundi samhæfingarstöðvar í gær voru kynntar niðurstöður starfshóps ríkislögreglustjóra sem vann að greiningu á hugsanlegum aðgerðum sem miða að því að stemma stigu við komu ferðamanna frá áhættusvæðum. Koma þar til skoðunar m.a. ákvæði laga um sóttvarnir, um loftferðir og ákvæði laga um útlendinga. Sóttvarnaviðbrögð verða að vera í samræmi við áhættumat og þar að vega áhrif viðbragða á móti áhrifum farsóttarinnar. Ef landinu er lokað komast Íslendingar sem staddir eru erlendis ekki heim, nema skipulagður sérstakur heimflutningur. Einnig munu aðföng og útflutningur raskast.

Að öllu óbreyttu verður næsti stöðufundur í samhæfingarstöð almannavarna haldinn mánudaginn 2. mars kl. 08:15

Skilgreind áhættusvæði með mikla og litla smitáhættu.

Svæði með mikla smitáhættu eru Kína, fjögur héruð á Norður Ítalíu (Lombardía, Venetó, Emilia Rómanja og Píemonte), Suður-Kórea og Íran. Sóttvarnalæknir ráðleggur einstaklingum frá því að fara til þessara landa/svæða að nauðsynjalausu, en þeir sem koma hingað frá þessum stöðum er ráðlagt að fara í 14 daga sóttkví Opnast í nýjum glugga. Athugið að þeir sem fara um þessi svæði en dvelja ekki á þeim þurfa ekki að fara í sóttkví. Þannig þurfa þeir sem fljúga til eða frá þessum svæðum, eftir dvöl á skíðasvæðum utan þeirra, ekki að fara í sóttkví.

Svæði með litla smitáhættu

Áhættusvæði sem skilgreind hafa verið með litla smitáhættu eru önnur svæði á Ítalíu, Japan, Singapúr, Hong Kong og Tenerife (fyrir utan H10 Costa Adeje Palace hótelið). Ferðamenn sem eru nú þegar á þessum svæðum og þeir sem hafa nýlega komið þaðan eru beðnir um að huga vel að persónulegu hreinlæti og sýkingavörnum en ekki er talin nauðsyn á sérstakri sóttkví fyrir þá sem eru nýkomnir frá þessum svæðum. Einstaklingum sem koma frá svæðum með litla áhættu eru beðnir að láta vita í síma 1700 ef þeir veikjast innan 14 daga eftir brottför frá þessum svæðum.

Almennt hreinlæti mikilvægt

Ferðamenn sem eru nú þegar á skilgreindum áhættusvæðum og þeir sem hafa nýlega komið þaðan eru beðnir um að huga vel að persónulegu hreinlæti og sýkingavörnum. Þær fela meðal annars í sér að þvo hendur oft og vel, hafa klút fyrir andlitinu við hnerra og hósta í olnbogabót og nota handspritt. Almenningur getur með auðveldum hætti dregið úr sýkingarhættu með því að gæta vel að persónulega hreinlæti. Handþvottur og almennt hreinlæti í kringum augu, nef og munn og það að forðast að heilsa með handabandi hefur lykilþýðingu við að forðast smit og fækka smitleiðum.

Einstaklingar sem fá einkenni frá öndunarfærum, sérstaklega með hita, skulu þeir hafa samband við Læknavaktina í síma 1700 eða sína heilsugæslu símleiðis en ekki mæta óboðaðir á sjúklingamóttökur.