Fara beint í efnið

Hvað get ég gert ef það er ekki hemlaprófari fyrir ökutæki yfir 3,5 tonn á skoðunarstöðinni næst mér?

Ef svokallaður hemlaprófari fyrir ökutæki sem eru meira en 3,5 tonn að þyngd er ekki í skoðunarstöð eða ekki verður komist í hann í þeirri sömu skoðunarstöð nema á ákveðnum tímum ársins og önnur skoðunarstöð er ekki í nágrenninu þá er hægt að sækja um viðbótarfrest í tvo mánuði með því að tilkynna Sýslumanninum á Vestfjörðum um þá ósk sína. Tilkynningin þarf að hafa borist áður en frestur til skoðunar rennur út og má vera á rafrænu formi.

Nánari upplýsingar má finna á vef sýslumanna.



Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?