Stafrænt Ísland: Stafræn skírteini
Hvernig get ég sótt stafrænt ADR-skírteini í gegnum Ísland.is appið?
Ef þú ert þegar með appið í símanum þínum þarftu ekki annað en að fara inn í appið. Velja hnappinn niðri í hægra horninu sem kallast skírteini.
Þar birtist ADR-skírteinið. Þú ýtir á skírteinið og velur Add to Apple wallet fyrir Iphone en add to Wallet og velur svo Smartwallet fyrir Android síma.
Athugaðu að þú þarft að vera með Smartwallet uppsett í Android síma áður en þú getur sótt skírteinið í gegnum appið.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?
Stafrænt Ísland