Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst 27. júlí
Ef kjósendur geta ekki kosið á kjördag er hægt að kjósa utan kjörfundar, hjá sýslumönnum eða erlendis.
Kosning á Íslandi
Kjósendur á Íslandi geta kosið hjá sýslumönnum og einnig á skrifstofu hjá sumum sveitarfélögum.
Hér má finna upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma utankjörfundaratkvæðagreiðslu hjá sýslumönnum.

Kosning erlendis
Kjósendur þurfa að kanna á vef utanríkisráðuneytisins hvort auglýstur hafi verið tími sem utankjörfundarkosning fer fram í viðkomandi sendiráði eða hjá ræðismanni. Sýna þarf skilríki, til dæmis ökuskírteini eða vegabréf, þegar kosið er.
Kjósendur bera sjálfir ábyrgð á því að koma atkvæði sínu til skila, t.d. með pósti eða einhver taki atkvæðið heim og komi því til skila.
Hér má finna upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma utankjörfundaratkvæðagreiðslu hjá kjörstjórum erlendis.