Sveitarstjórnarkosningar 2026
Kærur vegna sveitarstjórnarkosninga
Úrskurðarnefnd kosningamála tekur til úrskurðar ýmsar kærur er varða kosningar og kosningaframkvæmd.
Til nefndarinnar má skjóta eftirtöldum ákvörðunum:
Synjun Þjóðskrár Íslands um að taka kjósanda á kjörskrá og um leiðréttingar á kjörskrá.
Ákvörðun yfirkjörstjórnar sveitarfélags um gildi framboðslista og önnur atriði er þau varða.
Ákvörðun yfirkjörstjórnar um kjörgengi frambjóðenda í sveitarstjórnarkosningum.
Kæru vegna ólögmætis sveitarstjórnarkosninga.
Ákvörðun sem landskjörstjórn tekur samkvæmt öðrum lögum.
Hér má nálgast frekari upplýsingar um úrskurðarnefnd kosningamála.