Sveitarstjórnarkosningar 2026
Grindavík
Íbúar Grindavíkur sem voru með lögheimili í Grindavík þann 9. nóvember 2023 en hafa síðan flutt lögheimili sitt úr sveitarfélaginu geta valið hvort þeir eru kjörgengir og á kjörskrá í Grindavík eða í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga nú lögheimili. Athugið að ekki er hægt að vera á kjörskrá í báðum sveitarfélögum.
Ef ekki er sótt um verður kjósandinn á kjörskrá í lögheimilissveitarfélagi sínu og kjörgengur þar.
Á kjördag þarf kjósandi sem sótt hefur um að vera á kjörskrá í Grindavík að kjósa á kjörstað í Grindavík og getur ekki kosið í því sveitarfélagi þar sem hann á nú lögheimili.
Hægt er að kjósa utankjörfundar, en kjósandi ber ábyrgð á því að koma atkvæði sínu til skila til Grindavíkur.
Ef kjósandi er með lögheimili í Grindavík á viðmiðunardegi kjörskrár, 8. apríl 2026, er hann á kjörskrá í Grindavík og með kjörgengi þar.
Umsókn um að vera á kjörskrá í Grindavík gildir aðeins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara 16. maí 2026.