Fara beint í efnið

Sveitarstjórnarkosningar 2026

Sameiginlegar leiðbeiningar í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga 2026

1. apríl 2026

Í tilefni sveitarstjórnarkosninganna sem fram fara 16. maí nk. hafa nokkrar stofnanir tekið höndum saman og gefið út sameiginlegar leiðbeiningar fyrir stjórnmálasamtök, framboð og almenning.

Leiðbeiningarnar eru unnar í samstarfi Persónuverndar, Fjölmiðlanefndar, Fjarskiptastofu, CERT-IS, landskjörstjórnar og embættis ríkislögreglustjóra. Markmið þeirra er að efla upplýsta umræðu, öryggi og traust í kosningabaráttu, auk þess að skýra þær reglur sem gilda á þessu tímabili.

Í leiðbeiningunum er fjallað um fjölbreytt atriði, þar á meðal hlutverk fjölmiðla, reglur um auglýsingar og kostað efni, notkun samfélagsmiðla, öryggi stafrænnar miðlunar og meðferð persónuupplýsinga.

Sérstök áhersla er lögð á gagnsæi í kosningabaráttu, ábyrga upplýsingamiðlun og mikilvægi þess að virða réttindi kjósenda. Leiðbeiningarnar eru jafnframt ætlaðar almenningi til að auka skilning á þeim reglum sem gilda í aðdraganda kosninga og styrkja traust á lýðræðislegu ferli.

Útgáfan er liður í undirbúningi fyrir kosningarnar í vor og endurspeglar aukna áherslu stjórnvalda á samræmda nálgun og skýra upplýsingagjöf í aðdraganda þeirra.

Hér að neðan má nálgast sameiginlegar leiðbeiningar í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga 2026: