Nefnd um eftirlit með lögreglu
9. október 2026
Ákvörðun nr. 67.2026 í máli nr. NEL 25100003 dags. 9.10.2026
Ákvörðun nr. 67/2025
Þann 9. október 2026 kom nefnd um eftirlit með lögreglu saman til fundar og tók ákvörðun um endurupptöku í máli nr. NEL 25100003 í ljósi nýrra gagna sem nefndinni bárust.
Efni kvörtunar
Nefnd um eftirlit með lögreglu barst erindi frá [...] dags. 24. september 2025. Í erindinu eru gerðar athugasemdir við framkomu og starfsaðferðir starfsmanna lögreglustjórans á Suðurnesjum vegna atvika sem áttu sér stað þann 22. apríl sl. Fram kemur að 13 ára dóttir kvartanda hafi verið ein á heimili þeirra um kl. 16:00 þegar bankað var harkalega á rúðu á neðri hæð hússins. Dóttir kvartanda hafi opnað útidyrnar og við henni blasað þrír óeinkennisklæddir menn. Við það hafi hún orðið skelkuð og hlaupið inn í húsið þar sem hún hafi reynt að læsa millihurð sem skilur að forstofu og íbúðarrými fjölskyldu hennar. Einn mannanna hafi þá farið á eftir henni og rifið upp hurðina svo hún náði ekki að læsa henni. Dóttir hennar hafi þá reynt að hlaupa upp stigann í húsinu þar sem hún taldi hún að um innbrotsþjófa væri að ræða enda ekkert sem benti til þess að lögregluaðgerð væri í gangi. Einn mannanna hafi farið á eftir henni, gripið í hendur hennar í miðjum stiganum og haldið þeim fyrir aftan bak hennar. Hún hafi þá verið hágrátandi og öskrað á mömmu sína. Það hafi ekki verið ekki fyrr en lögreglukona kom inn og ítrekaði fyrir dóttur hennar að þetta væru allt lögreglumenn sem hún áttaði sig á að e.t.v. væri ekki verið að ræna henni. Þá kemur fram að dóttur hennar hafi verið haldið fastri í allt að 15 mínútur.
Nefnd um eftirlit með lögreglu tók ákvörðun í málinu þann 23. janúar 2026 og komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri tilefni til að aðhafast vegna málsins en beindi tilmælum til lögreglustjórans á Suðurnesjum.
Þann 22. febrúar sama ár barst nefndinni bréf frá kvartanda þar sem greint var frá rangfærslum í gögnum frá lögreglu er varðaði símtal dótturinnar í síma kvartanda. Þar kom fram að dóttir kvartanda hafi verið í sambandi við kvartanda á meðan hún var í haldi lögreglu en í bréfinu segir að það sé rangt, kvartandi hafi hins vegar ítrekað reynt að hringja í hana en hafi ekki fengið svar. Kvartandi leggur fram gögn sem styðja við þá fullyrðingu.
Nefnd um eftirlit með lögreglu tók ákvörðun um að endurupptaka málið á grundvelli nýrra upplýsinga frá kvartanda hvað varðar meintar rangfærslur embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum í málinu. Nefndin óskaði eftir afstöðu embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum vegna framangreinds bréfs, þann 4. mars 2026.
Valdsvið nefndarinnar
Nefnd um eftirlit með lögreglu starfar á grundvelli VII. kafla lögreglulaga nr. 90/1996, sbr. breytingar á þeim með lögum nr. 62/2016. Helstu verkefni nefndarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. a. í nefndum lögum, eru að taka við kærum á hendur starfsmanni lögreglu fyrir ætlað refsivert brot við framkvæmd starfa hans annars vegar og taka við kvörtunum vegna starfsaðferða lögreglu eða framkomu starfsmanns lögreglu sem fer með lögregluvald hins vegar. Berist nefndinni erindi um ætlaða refsiverða háttsemi skal erindinu beint án tafar til héraðssaksóknara eða eftir atvikum ríkissaksóknara. Hið sama á við ef einstaklingur lætur lífið eða verður fyrir stórfelldu líkamstjóni í tengslum við störf lögreglu, óháð því hvort grunur er um refsivert brot.
Að því er varðar kvartanir vegna háttsemi eða starfsaðferða sem ekki verða taldar refsiverðar en gætu meðal annars leitt til starfsmannaréttarlegra viðurlaga, skal nefndin sbr. 2. mgr. 35. gr. a., taka rökstudda afstöðu til þeirra og senda viðeigandi embætti kvörtun til frekari meðferðar ef tilefni er til. Þessu til viðbótar hefur nefndin heimild til að senda viðeigandi embætti eða eftir atvikum öðrum stjórnvöldum athugasemdir sínar við afgreiðslu einstakra mála eða tilmæli um aðrar aðgerðir. Það fellur hins vegar ekki undir valdsvið nefndar um eftirlit með lögreglu að endurskoða ákvarðanir handhafa ákæruvalds um það hvort rétt sé að gefa út ákæru í máli.
Nefndin fylgist einnig með meðferð viðkomandi embættis á erindum sem stafa frá henni og embætti sem fá til meðferðar kvartanir sem heyra undir nefndina skulu tilkynna henni um niðurstöður þeirra.
III.
Gögn frá lögreglu
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum svaraði beiðni nefndarinnar með bréfi dags. 27. nóvember 2025. Meðfylgjandi voru öll gögn málsins ásamt dagbókarfærslum lögreglu og greinargerð lögreglufulltrúa vegna atviksins. Fram kemur að engar upptökur séu til af afskiptunum. Í greinargerð embættisins kemur m.a. fram að aðdragandi atviksins hafi verið rannsókn á innflutningi fíkniefna og að meintur viðtakandi efnanna hafi verið staddur á heimili kvartanda. Þá kemur einnig fram eftirfarandi:
„[…] Unga konan sem kom til dyra reyndist vera 14 ára ólögráða einstaklingur sem eðlilega var brugðið við aðgerðir lögreglu. Hluti rannsóknarmanna huldu andlit sitt og báru lambhúshettur en slík ráðstöfun er í sjálfvald sett meðal rannsóknarlögreglumanna sem vinna að rannsóknum mála er varða skipulagða brotastarfsemi. Þegar rannsóknarlögreglumönnum varð ljóst um ungan aldur stúlkunnar sýndu þeir stúlkunni skilríki sín og útskýrðu fyrir henni ástæðuna fyrir veru þeirra á heimili þeirra. Í framhaldi voru foreldrar hennar og húsráðendur upplýst um málavexti og veittar samskiptaupplýsingar ef frekari upplýsingar væri þörf.
Ekki verður séð að hægt hafi verið að vinna lögregluaðgerðina með öðrum hætti. Til rannsóknar var brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og ríkir rannsóknarhagsmunir voru í húfi þ.e.a.s. ná til samsekra sem dvöldu í húsinu. Í engum gögnum sem lögregla hafði aðgang að lágu fyrir upplýsingar um að í íbúðinni væri önnur íbúð sem er leigð út og að aðgengi að henni væri sameiginlegt við aðra íbúa hússins. Einnig voru fyrstu viðbrögð stúlkunnar eftir að hún opnaði dyrnar að hlaupa í burtu en sömu viðbrögð eru þekkt þegar lögregla hefur afskipti af sakborningum við sambærilegar aðstæður. Þá má einnig ætla að sökum eðlilegra viðbragða stúlkunnar gerðu rannsóknarlögreglumenn sér ekki grein fyrir ungum aldri hennar.[…]“
Í bréfi frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum, dags. 18. mars 2026, svarar embættið beiðni nefndarinnar um frekari upplýsingar vegna framhaldserindis kvartanda. En þar kemur fram:
„[…] Fullyrða rannsóknarlögreglumennirnir einnig að stúlkan hafi fengið að ræða við móður sína, símleiðis, í kjölfarið og meðal annars hafi […] útskýrt fyrir móður stúlkunnar að hún yrði að bíða fyrir utan húsið þar sem lögregluaðgerðir væru enn yfirstandandi inni í íbúðinni. Á sama tíma var unnið að handtöku aðila sem leigði herbergi í íbúð [kvartanda], gögn sem sýna fram á að eitt símtal við son hennar kl. 16:20 og svo annað 17:14. Gögnin eru lögð til grundvallar meintum rangfærslum lögreglunnar um að stúlkan hafi ekki fengið að ræða við móður sína. Í sama bréfi leggur [kvartandi] fram skjáskot af síma [dóttur kvartanda] sem sýnir missed call eða símhringingu sem ekki var svarað kl. 16:27. Skjáskotið rennir stoðum undir frásögn rannsóknarlögreglumannanna um að þau hafi leyft [dóttur kvartanda] að hringja í móður sína og hún ekki svarað eins og skjáskotið ber með sér, að öðrum kosti hefði ósvaraða símtalið ekki vistast í síma hennar. Ekki er unnt að skýra þetta misræmi með öðrum hætti en að símtal mæðgnanna hafi farið fram í gegnum samskiptaforrit en slík samtöl skrást ekki í hefðbundna símtalaskrá.
Þá gerir [kvartandi] athugasemd við það að rannsóknarlögreglumennirnir hafi ekki gert grein fyrir sér með lögregluskilríkjum. Þessu er alfarið hafnað sem röngu. Þá vísast í frásögn rannsóknarlögreglumanna í lið 1 hér að ofan að stúlkan hafi róast eftir að henni voru sýnd lögregluskilríki […]. Eins og gefur að skilja er ekki vænlegt til árangurs að vinna lögregluaðgerð sem þessa með einkenniskenndum lögreglumönnum þar sem markmiðið var að ná til þeirra sem tengdust og skipulögðu innflutning fíkniefnanna.
Rétt er að [dóttir kvartanda] var í haldi lögreglu í skamman tíma í kjölfar þess að rannsóknarlögreglumenn gerðu sér grein fyrir aðstæðum og ungum aldri var hún hjá lögreglumönnum, þar til aðstæður og öryggi hennar var tryggt. Eins og áður hefur komið fram handtók lögreglan grunaðan mann á öðrum stað í íbúðinni. Sé stuðst við gögn þau sem [kvartandi] lagði fram þá er mynd sem sýnir aðilann sem flutti fíkniefnin til Íslands vera að loka eftir sér dyrunum að íbúð [kvartanda] og fjölskyldu að […] og kemur fram í bréfi [kvartanda] að tímasetningin á myndinni hafi verið 16:25. Einnig lagði hún fram mynd sem sýnir þegar [kvartandi] fékk [dóttur kvartanda] í sínar hendur en þá var kl. 16:41. Ef síðari myndin er stækkuð sést hvar rannsóknarlögreglumennirnir […] og […] standa við hægri hlið bifreiðar [kvartanda] og eiga í viðræðum við hana. Á þeim tíma var búið að tryggja vettvang, flytja hinn handtekna frá íbúðinni og fylgja [dóttur kvartanda] út úr íbúðinni og að bifreið móður hennar sem beið á bílastæði framan við […]. Má því ætla af þeim gögnum að [dóttir kvartanda] hafi verið mun skemur en 16 mínútur með lögreglumönnum.
Var það mat rannsóknardeildar lögreglunnar á þessum tíma þegar málið kom upp að ríkir rannsóknarhagsmunir væru í húfi og mikilvægt að fylgja málinu eftir með það að markmiði að ná til raunverulegra eiganda haldlagðra fíkniefna. Þung fangelsisrefsing liggur við broti gegn 173. gr. a. almennra hegningarlaga og því mikilvægt að lögregla grípi til rannsóknaraðgerða sem þessara við að upplýsa og ná til þeirra sem eiga hlut að máli.
Embættið greinir einnig frá í svari sínu til nefndarinnar að:
„Er það mat okkar sem að lögregluaðgerðinni stóðum að hún hafi verið nauðsynleg og réttlætanleg. Þeir aðilar sem handteknir voru í tengslum við rannsókn málsins hlutu þungan fangelsisdóm fyrir aðild sína. Lögreglan á Suðurnesjum harmar þá neikvæðu reynslu sem [dóttir kvartanda] varð fyrir í tengslum við innför lögreglu á heimili hennar og lögðu rannsóknarlögreglumenn á vettvangi sig fram við að útskýra og hlúa að [dóttur kvartanda] þar sem henni var boðin öll sú þjónusta sem lögreglan hefur aðgang að í tengslum við áföll“
Í kjölfar fyrrgreindra ábendinga frá kvartanda um ranga upplýsingagjöf lögreglu til nefndarinnar var óskað eftir frekari skýringum frá embættinu, með tölvupósti þann 12. maí sl. Svar barst frá embættinu þann 28. september sl. en þar kemur fram:
„Til útskýringa við svari embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum dagsettu 18. mars 2026, á lið 1 þar sem fram kemur eftirfarandi: Í sama bréfi leggur [kvartandi] fram skjáskot af sína [dóttur kvartanda] sem sýnir missed call eða símhringingu sem ekki var svarað kl. 16:27. Skjáskotið rennir stoðum undir frásögn rannsóknarlögreglumannanna um að þau hafi leyft [dóttur kvartanda] að hringja í móður sína og hún ekki svarað eins og skjáskotið ber með sér, að öðrum kosti hefði ósvaraða símtalið ekki vistast í síma hennar.“
Svo virðist sem mistök hafi átt sér stað en undirritaður taldi skjámynd af síma [dóttur kvartanda] hafi átt við síma móðurinnar [kvartanda]. Verður því að styðjast við framburð lögreglumanna hvað varðar lið 1. Beðist er velvirðingar á þessum leiðu mistökum.“
IV.
Forsendur
Nefnd um eftirlit með lögreglu ber að greina hvort erindi sem henni berast vegna háttsemi lögreglu feli í sér kvörtun yfir starfsháttum eða kæru vegna ætlaðrar refsiverðrar háttsemi starfsmanna lögreglunnar. Af erindinu er ljóst að um er að ræða kvörtun sem lýtur að framkomu og starfsaðferðum starfsmanna embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum.
Nefnd um eftirlit með lögreglu fór ítarlega yfir erindið og þau gögn sem henni bárust frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum. Afar miður er að dóttir kvartanda hafi lent í hringiðju lögregluaðgerða og orðið fyrir verulega áfalli vegna þeirra. Þá telur nefndin óheppilegt að ekki séu til upptökur af atvikinu, sér í lagi þar sem aðilum ber ekki að öllu leyti saman um málsatvik.
Samkvæmt 5. gr. reglugerðar nr. 380/2019 um lögregluskilríki og notkun þeirra skulu óeinkennisklæddir lögreglumann við störf „að jafnaði gera viðkomandi borgara það ljóst, áður en hann ber upp erindi sitt að hann sé lögreglumaður. Þetta getur hann gert með því að framvísa lögregluskilríkjunum.“ Þó er heimilt samkvæmt 2. mgr. 5. gr. fyrrnefndrar reglugerðar „[... ] að víkja frá þessari meginreglu við handtöku á henni ef ólæti standa yfir [...]”. Eins og gögn málsins bera með sér var dóttur kvartanda ekki gert ljóst með neinum hætti í umrætt sinn að þar væru lögreglumenn á ferð. Með hliðsjón af eðli lögregluaðgerðarinnar verður þó að teljast sennilegt að undanþáguákvæði 2. mgr. 5. gr. hafi verið uppfyllt og því ekki þörf á að lögreglan framvísaði lögregluskilríkjum. Hins vegar hefði átt að vera svigrúm til þess að greina dóttur kvartanda frá því munnlega að hér væri lögreglan á ferð, sbr. ákvæði 2. mgr. 13. gr. lögreglulaga þar sem segir að lögregla skuli gæta þess að mönnum verði ekki gert tjón, óhagræði eða miski framar en óhjákvæmilegt er eftir því sem á stendur.
Dóttir kvartanda var í haldi lögreglu í um sextán mínútur líkt og fram kemur í bréfi frá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum.
Kvartanda og lögreglu ber ekki saman um hvort dóttir kvartanda hafi fengið að vera í sambandi við móður sína á meðan á aðgerðunum stóð. Gögn málsins bera þó með sér að kvartandi hringdi í dóttur sína en fékk ekki svör við þeim símtölum auk þess sem símtalaskrá dóttur kvartanda ber með sér að hún hafi ekki hringt í móður sína. Nefndin getur þó ekki sannreynt hvort einhver samskipti hafi átt sér stað í gegnum samskiptaforrit líkt og lögreglan heldur fram.
Þegar lögregluaðgerð fer fram á heimili þar sem barn er statt ber lögreglu að taka sérstakt tillit til hagsmuna og velferðar barnsins og trygga eftir því sem unnt er að aðgerðin valdi barninu ekki óþarfa ótta, óöryggi eða röskun á velferð þess, sbr. t.d. 3. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sbr. lög nr. 19/2013.
Eins og áður greinir gerði lögreglan ekki grein fyrir sér er hún kom inn á heimili kvartanda í umrætt sinn. Virðist sú ákvörðun hafa haft djúpstæð áhrif á dóttur kvartanda sem grét og kallaði á móður sína á meðan á aðgerðunum stóð. Þegar lögregla áttaði sig á ungum aldri dóttur kvartanda var reynt að bregðast við í samræmi við það en þó ekki þannig að tryggt hafi verið að dóttir kvartanda og kvartandi fengju að ræðast við símleiðis. Þrátt fyrir að atburðarrásin hafi öll verið einkar óheppileg og haft djúpstæð áhrif á dóttur kvartanda telur nefndin að ekki sé beinlínis um ámælisverða háttsemi starfsmanna lögreglu að ræða, sbr. 2. mgr. 35. gr. a. laga nr. 90/1996. Þó er fullt tilefni til að draga lærdóm af þessu máli og beinir nefndin sérstaklega þeim tilmælum til embættisins að farið verði yfir mikilvægi þess að hagsmunir barna og ungmenna séu sérstaklega hafðir í huga, eins og unnt er, við lögregluaðgerðir. Þá er mikilvægt að óeinkennisklæddir lögreglumenn sem hafa afskipti af borgurum með þvingunaraðgerðum geri grein fyrir sér í samræmi við meginreglu 5. gr. reglugerðar nr. 380/2019 sbr. og 2. mgr. 13. gr. lögreglulaga. Er þetta enn brýnna þegar í hlut eiga börn eða ungmenni.
Þá bendir nefndin kvartanda á rétt sinn til að krefjast bóta á grundvelli XXXIX. kafla laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
V.
Niðurstaða
Nefndin beinir þeim tilmælum til embættisins að farið verði yfir mikilvægi þess að hagsmunir barna og ungmenna séu sérstaklega hafðir í huga, eins og unnt er, við lögregluaðgerðir. Jafnframt að farið verði yfir mikilvægi þess að óeinkennisklæddir lögreglumenn sem hafa afskipti af borgurum með þvingunaraðgerðum, geri grein fyrir sér, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 380/2019 sbr. og 2. mgr. 13. gr. lögreglulaga. Er þetta enn brýnna þegar í hluta eiga börn eða ungmenni.
Reykjavík, 9. október 2026
Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu