Fara beint í efnið

Nefnd um eftirlit með lögreglu

9. október 2026

Ákvörðun nr. 56.2026 í máli nr. NEL 26050004 dags. 9.10.2026

Ákvörðun nr. 56/2026

Þann 9. október 2026 kom nefnd um eftirlit með lögreglu saman til fundar og tók eftirfarandi ákvörðun nr. 56/2026.

Efni kvörtunar

Nefnd um eftirlit með lögreglu barst erindi frá [...], lögmanni f.h. [...], dags. 14. maí 2026. Í erindinu eru gerðar athugasemdir við framkomu og starfsaðferðir starfsmanna lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu þegar kvartandi var handtekinn 12. maí sl. og óskaði eftir ofangreindum lögmanni [...]. Rannsóknarlögregla hafði þá samband við umræddan lögmann og upplýsti að það yrði haft samband síðar um kvöldið þegar kæmi að skýrslutöku til að lögmaðurinn gæti verið viðstödd í samræmi við ósk kvartanda. [...] var tilkynnt, um 22:30 sama kvöld, að það þyrfti að finna annan verjanda fyrir kvartanda annars myndi lögreglan gera það. Skýringin sem gefin var, var að túlkur sem átti að túlka í skýrslutökunni hafi neitað að túlka ef [...] yrði viðstödd sem verjandi. Rannsóknarlögreglumaðurinn tók jafnframt fram að lögreglan hefði hvorki tíma né þolinmæði í að standa í því að finna annan túlk. Í erindinu kemur fram að á þeim tíma hafði kvartandi „verið sviptur frelsi sínu í tæpar átta klukkustundir. Með hagsmuni hans í fyrirrúmi taldi [...] ekki forsvaranlegt að tefja skýrslutökuna frekar með ágreiningi við lögreglu á vettvangi um rétt sakbornings til þess að njóta aðstoðar þess verjanda sem hann sjálfur hafði óskað eftir og treysti“.

Í erindinu segir einnig að um „alvarlegt frávik frá réttindum sakbornings að ræða. Sakborningur hafði með skýrum hætti óskað eftir tilteknum verjanda sem hafði áður gætt hagsmuna hans og naut trausts hans. Þrátt fyrir það var honum í reynd gert að sæta öðrum verjanda á þeirri forsendu einni að túlkur neitaði að túlka ef ég væri viðstödd.“

Nefndin óskaði eftir frekari upplýsingum frá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu með bréfi dags. 10. júní 2026.

Valdsvið nefndarinnar

Nefnd um eftirlit með lögreglu starfar á grundvelli VII. kafla lögreglulaga nr. 90/1996, sbr. breytingar á þeim með lögum nr. 62/2016. Helstu verkefni nefndarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. a. í nefndum lögum, eru að taka við kærum á hendur starfsmanni lögreglu fyrir ætlað refsivert brot við framkvæmd starfa hans annars vegar og taka við kvörtunum vegna starfsaðferða lögreglu eða framkomu starfsmanns lögreglu sem fer með lögregluvald hins vegar. Berist nefndinni erindi um ætlaða refsiverða háttsemi skal erindinu beint án tafar til héraðssaksóknara eða eftir atvikum ríkissaksóknara. Hið sama á við ef einstaklingur lætur lífið eða verður fyrir stórfelldu líkamstjóni í tengslum við störf lögreglu, óháð því hvort grunur er um refsivert brot.

Að því er varðar kvartanir vegna háttsemi eða starfsaðferða sem ekki verða taldar refsiverðar en gætu meðal annars leitt til starfsmannaréttarlegra viðurlaga, skal nefndin sbr. 2. mgr. 35. gr. a., taka rökstudda afstöðu til þeirra og senda viðeigandi embætti kvörtun til frekari meðferðar ef tilefni er til. Þessu til viðbótar hefur nefndin heimild til að senda viðeigandi embætti eða eftir atvikum öðrum stjórnvöldum athugasemdir sínar við afgreiðslu einstakra mála eða tilmæli um aðrar aðgerðir. Það fellur hins vegar ekki undir valdsvið nefndar um eftirlit með lögreglu að endurskoða ákvarðanir handhafa ákæruvalds um það hvort rétt sé að gefa út ákæru í máli.

Nefndin fylgist einnig með meðferð viðkomandi embættis á erindum sem stafa frá henni og embætti sem fá til meðferðar kvartanir sem heyra undir nefndina skulu tilkynna henni um niðurstöður þeirra.

III.

Gögn frá lögreglu

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu svaraði nefndinni með bréfi dags. 24. ágúst sl. Meðfylgjandi var greinargerð, frumskýrsla og framburður kvartanda í skýrslutöku.

Í bréfinu kemur fram að málið sé enn í rannsókn og hafi hluti sakborninga verið fluttir úr landi. Lögreglumaðurinn sem kvartað er yfir hafi tekið saman greinargerð til að varpa ljósi á aðstæður þess að nauðsynlegt var talið að skipta þurfti út verjanda fyrir kvartanda.

Fram kemur í greinargerð lögreglumannsins:

„Það er rétt að ég óskaði eftir því að annar lögmaður myndi sitja skýrslutökuna. Ég geri hins vegar athugasemdir við það hvernig lögmaðurinn setur kvörtunina fram. Í fyrsta lagi þarf það að koma fram að ég hafði samband við túlkaþjónustu til að fá rúmenskan túlk vegna þessa máls. Starfsmaður túlkaþjónustunnar spurði mig þá hvort [...] væri verjandi einhvers þeirra fimm sakborninga sem til stóð að taka skýrslur af, en á þeim tímapunkti var ég ekki meðvituð um að [...] væri lögmaður eins þeirra. Starfsmaðurinn tjáði mér að það myndi ekki ganga upp ef [...] væri á staðnum þar sem rúmenskir túlkar (í fleirtölu) á þeirra vegum, myndu ekki túlka að henni viðstaddri. Túlkur var þá bókaður í verkefnið. Málið var mjög tímafrekt, sakborningar fimm talsins og skýrslutökurnar langar. Þegar ég vissi að [...] væri lögmaður eins þeirra hafði ég hugsað mér að leysa það þegar að því kæmi. Ég ræddi við túlkinn og spurði hvort hann gæti ekki klárað þessa vinnu og túlkað þó [...] væri viðstödd. Ég fékk þvert nei frá túlkinum og ástæðan sú að túlkurinn hefði áður lent í ágreiningi við [...] í skýrslutökum og fyrir dómi. Í ljósi þessa og einnig vitandi að erfitt er að fá rúmenska túlka – þar sem þeir eru ekki margir – í skýrslutökur ákvað ég að hafa samband við [...]. Ég kynnti henni afstöðu túlksins og óskaði eftir því að hún sendi fulltrúa í sinn stað svo hægt yrði að klára þessa skýrslutöku. [...] var ósátt við það og gerði athugasemdir við túlkinn og sagði að hann væri vanhæfur, m.a. vegna ungs aldurs og lélegs orðaforða. Ég tjáði henni þá að erfitt væri að fá rúmenskan túlk, sérstaklega á þessum tíma dags og að til að klára þessar skýrslutökur myndi ég þurfa að finna annan lögmann fyrir sakborning, ef hún gæti ekki sent fulltrúa fyrir sig. Þarna geri ég athugasemd við orðalag lögmannsins í kvörtuninni: Rannsóknarlögreglukonan tók jafnframt fram að lögreglan hefði hvorki tíma né þolinmæði til að standa í því að finna annan túlk. Ég minnist þess ekki að hafa sagt að ég hefði ekki þolinmæði eða tíma til að standa í þessu, aðeins að klukkan væri orðin margt og erfitt væri að fá annan túlk. Ástæða þess að ekki var gerð tilraun til að fá annan túlk í málið er eins og áður hefur komið fram eða það sem kom fram í samskiptum mínum við starfsmann túlkaþjónustunnar. Í ljósi þess og þess að erfitt hefur verið að fá rúmenska túlka í skýrslutökur tók ég því þessa ákvörðun. Enda er það réttur sakbornings að skýrslutaka fari fram á því tungumáli sem hann talar og skilur.“

Í skýrslu málsins hjá lögreglu má sjá að nafngreindur lögmaður var viðstaddur skýrslutökuna sem fram fór þann 13. maí 2026, klukkan 23:41 og lauk klukkan 00:21. Þá er einnig undirritað blað þar sem fyrrnefndur lögmaður var tilnefndur verjandi kvartanda, með hans samþykki.

IV.

Forsendur

Nefnd um eftirlit með lögreglu ber að greina hvort erindi sem henni berast vegna háttsemi lögreglu feli í sér kvörtun yfir starfsháttum eða kæru vegna ætlaðrar refsiverðrar háttsemi starfsmanna lögreglunnar. Af erindinu er ljóst að um er að ræða kvörtun sem lýtur að starfsaðferðum starfsmanna embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.

Nefnd um eftirlit með lögreglu fór yfir erindið og þau gögn sem bárust frá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Með hliðsjón af því hvernig málsatvikum var lýst í kvörtuninni og þeim gögnum sem nefndin hefur undir höndum, telur nefndin að vandasöm staða hafi verið komin upp þar sem túlkun hafi ekki getað farið fram með þeim verjanda sem kvartandi hafi óskað eftir, sbr. greinargerð sem lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu lét nefndinni í té.

Nefnd um eftirlit með lögreglu bendir á að réttur sakbornings til verjanda er grundvallarþáttur í réttlátri málsmeðferð. Samkvæmt 30. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála er lögreglu skylt að verða við ósk sakbornings um að tilnefna honum verjanda þegar hann hefur verið handtekinn í þágu rannsóknar sakamáls. Í 3. mgr. 33. gr. sakamálalaga er kveðið á um að áður en verjandi sé skipaður eða tilnefndur skuli gefa honum kost á að benda á lögmann til að fara með þann starfa. Enn fremur er kveðið á um að við skipun eða tilnefningu verjanda skuli að jafnaði fara eftir ósk sakbornings, sbr. þó takmarkanir í 4. og 5. mgr. 33. gr., sem og ef „uggvænt þykir að viðkomandi verjandi muni hindra rannsókn málsins á ólögmætan hátt“. Ljóst er að ekkert þeirra skilyrða sem takmarka rétt sakbornings til að velja sér verjanda voru uppfyllt.

Nefnd um eftirlit með lögreglu bendir jafnframt á hið augljósa að sá ríki réttur til að óska eftir og fá tilnefndan verjanda verður aldrei takmarkaður af sérhagsmunum þriðja aðila, í þessu tilviki þess túlks sem neitaði að túlka í skýrslutöku með ákveðinn verjanda viðstaddan.

Með vísan til framangreinds beinir nefnd um eftirlit með lögreglu þeim tilmælum til lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að þess sé gætt að réttur sakbornings til þess verjanda, sem hann óskar eftir, sé ekki vikið til hliðar á grundvelli annarra sjónarmiða en þeim sem heimil eru á grundvelli sakamálalaga.

Niðurstaða

Nefnd um eftirlit með lögreglu beinir þeim tilmælum til lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að þess sé gætt að réttur sakbornings til þess verjanda sem hann óskar eftir, sé ekki vikið til hliðar á grundvelli annarra sjónarmiða en þeim sem heimil eru á grundvelli sakamálalaga.

Reykjavík, 9. október 2026

Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu

Nefnd um eftirlit með lögreglu

Heim­il­is­fang

Nefnd um eftirlit með lögreglu

Hlíðarsmári 1

201 Kópavogur

Hafa samband

Netfang: nel@nel.is

Sími: +354 545 8800

Síma­tími

Mánudagar og fimmtudagar

Kl. 10 - 11