Fara beint í efnið

Forsetakosningar 2024

Hver má kjósa? Kosningarréttur

Hver má kjósa?

  • íslenskir ríkisborgarar

  • með lögheimili á Íslandi

  • sem hafa náð 18 ára aldri á kjördag

Íslenskir ríkisborgarar sem búa erlendis

Íslenskur ríkisborgari sem hefur átt lögheimili á Íslandi, á kosningarrétt í 16 ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu.

Eftir þann tíma þarf hann að sækja um að vera settur aftur á kjörskrá til Þjóðskrár Íslands, fyrir 1. desember 2023. Ef umsækjandi uppfyllir skilyrðin verður hann skráður á kjörskrá til næstu fjögurra ára á eftir. Ef ekki var sótt um fyrir 1. desember síðastliðinn geta þeir sem hafa haft lögheimili erlendis, lengur en 16 ár, ekki kosið í forsetakosningunum.

Aðrir

Erlendir ríkisborgarar eiga ekki kosningarrétt við forsetakosningar og geta því ekki kosið. (fyrir utan danska ríkisborgara sem voru búsettir á Íslandi 6. mars 1946 eða einhvern tímann á síðustu 10 árum fyrir þann tíma)

Forsetakosningar 2024

Lands­kjör­stjórn

Hafðu samband

Sími: 540 7500

postur@landskjorstjorn.is

Heim­il­is­fang

Tjarnargata 4

101 Reykjavík

kt. 550222-0510