Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar

Málaflokkur

Skipulagsmál, Reykjavík

Undirritunardagur

19. desember 2025

Útgáfudagur

9. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1648/2025

19. desember 2025

AUGLÝSING

um breytingu á deiliskipulagi í Reykjavíkurborg.

Dalbrautarreitur – Leirulækur 4 og 6 – USK25080276.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur, með vísan til a-liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs, 17. desember 2025, breytingu á deiliskipulagi Dalbrautarreits vegna lóðanna nr. 4 og 6 við Leirulæk. Í breytingunni sem lögð er til felst að sameina lóðir tveggja leikskóla, Lækjarborgar og Laugaborgar, og stækka lóð lítillega vegna tilfærslu á bílastæðum. Þá er heimild fyrir niðurrifi eldri bygginga á lóð í heild eða að hluta og að reisa í stað þeirra 10 deilda leikskóla að hámarki 2.600m² með 200 nemendum og 60 starfsmönnum. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, 19. desember 2025.

Brynjar Þór Jónasson.

B deild — Útgáfudagur: 9. janúar 2026

Tengd mál