Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Málaflokkur
Undirritunardagur
17. mars 2025
Útgáfudagur
31. mars 2025
Leiðréttingar
13. október 2025
Í stað „Náttúrufræðistofnun Íslands“ hvarvetna í gjaldskránni við útgáfu, nema í lokamálsgrein, komi, í viðeigandi beygingarmynd: Náttúrufræðistofnun.
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 345/2025
17. mars 2025
GJALDSKRÁ
fyrir þjónustu Náttúrufræðistofnunar.
1. gr. Gjald fyrir útselda vinnu sérfræðings.
Náttúrufræðistofnun innheimtir gjald samkvæmt gjaldskrá þessari fyrir rannsóknir og ráðgjöf sem falla undir 3. gr. laga nr. 54/2024 um Náttúrufræðistofnun og náttúrustofur skv. 6. gr. laga nr. 54/2024. Gjald fyrir hverja klukkustund skal vera eftirfarandi án vsk:
| a. | Fyrir sérfræðinga I | kr. 21.700 |
| b. | Fyrir sérfræðinga II | kr. 19.400 |
| c. | Fyrir sérfræðinga III | kr. 17.100 |
2. gr. Skordýra- og sveppagreiningar.
Náttúrufræðistofnun innheimtir gjald fyrir greiningu á skordýrum og myglusveppum skv. 6. gr. laga nr. 54/2024.
Gjaldið skal vera kr. 4.300 fyrir skordýragreiningu til almennings.
Fyrir greiningu á myglusveppum í mannvirkjum skal innheimta tímagjald skv. 1. gr. gjaldskrárinnar.
3. gr. Útgáfa rita.
Náttúrufræðistofnun innheimtir gjald fyrir útgáfu rita skv. 6. gr. laga nr. 54/2024. Gjald fyrir hvert rit skal vera eftirfarandi án vsk:
| a. | Fyrir fjölrit Náttúrufræðistofnunar | kr. 1.700 |
| b. | Fyrir Blika | kr. 2.000 |
4. gr. Útflutningsleyfi fyrir rannsóknarsýni.
Náttúrufræðistofnun innheimtir gjald vegna útgáfu á útflutningsleyfi fyrir rannsóknarsýni skv. 6. gr. laga nr. 54/2024.
Gjaldið skal vera kr. 61.000.
5. gr. Útflutningsleyfi fyrir minjagripi og uppstoppuð dýr.
Náttúrufræðistofnun innheimtir gjald vegna útgáfu á útflutningsleyfi til almennings fyrir minjagripi og uppstoppuð dýr skv. 6. gr. laga nr. 54/2024.
Gjaldið skal vera kr. 8.900.
6. gr. Lagastoð og gildistaka.
Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt heimild í 3. mgr. 6. gr. laga nr. 54/2024 um Náttúrufræðistofnun og náttúrustofur.
Gjaldskráin öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 314/2024 fyrir þjónustu Náttúrufræðistofnunar Íslands.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 17. mars 2025.
F. h. r.
Stefán Guðmundsson.
Björn Helgi Barkarson.
B deild - Útgáfud.: 31. mars 2025